Loksins...

...rann bókin út úr prentvélinni hjá Odda. Hún verður komin í verslanir á morgun.

Hvaða verslanir?

Út um allt. Til dæmis Eymundsson í Austurstræti, Kringlunni og Smáralind og annars staðar þar sem slíkar verslanir finnast.

Iða í Lækjargötu verður áreiðanlega með hana líka, ég er meira að segja búin að lofa að lesa úr henni þar. Nánari tímasetning síðar.

Ég er fegin að vera búin að koma þessu frá mér. Allt í fína að skrifa bók undir pressu, en mér leiðist að bíða eftir að hún komi í hendurnar á mér eftir að minni vinnu er lokið. Það er eins og vanti lokapunktinn. Núna er hann loks kominn. Ég var svo vön því á Mogganum að skrifa eitthvað sem birtist í síðasta lagi nokkrum dögum síðar og þar með var það frá.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með þetta frú Ragnhildur.  Sumir tóku sig voða vel út í sjónvarpi í gær, ég nefni engin nöfn

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.12.2007 kl. 13:37

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk fyrir, ég skila þessu til nafnleysingjans

Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.12.2007 kl. 14:04

3 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Til hamingju með bókina þína!!!

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 12.12.2007 kl. 14:20

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk

Svo verð ég víst að fara að taka mig á í markaðsmálum, ég gleymi t.d. alltaf að taka fram hvað bókin heitir!! En hún heitir sem sagt "AÐGERÐ PÓLSTJARNA"

Þannig er nú það.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.12.2007 kl. 14:37

5 identicon

Hvar er hægt að panta bókina í verslanir? 

Anna (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 16:43

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Útgáfan heitir Skuggi forlag, Austurstræti 12, sími 517-2225, fax 517-2227, skuggi@skuggi.is

Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.12.2007 kl. 18:47

7 identicon

Til hamingju með bókina. Maður verður nú að fá sér eintak, og svei mér þá ef maður verður bara ekki að láta árita það! hehe... Mér er annars hugsað mikið til þín þessa dagna og reikningshæfileika þinna, er nefnilega að fara að taka próf í Rekstrarhagfræði á næstu dögum...

Brynjar Már Brynjólfsson (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 22:24

8 identicon

Til hamingju.Mig hlakkar til að lesa hana.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 04:55

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Rekstrarhagfræði? Uss, Brynjar, það ætti nú ekki að vera nokkur vandi fyrir vel máli farinn mann. Reikningshæfileikar skipta engu máli, eins og þú veist

Takk fyrir hamingjuóskirnar

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.12.2007 kl. 08:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband