13.12.2007 | 08:57
Giljagaur
Giljagaur kom í nótt, hvernig sem hann fór nú að því í þessu hávaðaroki, blessaður karlinn. Ég hefði átt að verða vör við hann, ég svaf ekki mikið í þessum látum. Núna var vindáttin önnur en á mánudag, svo lokið sviptist til hálfs af heita pottinum. Það var reyndar ágætt að prufukeyra garðinn og allan búnað í honum í þessum hressilegu rokum, núna er alveg ljóst hvernig hlutirnir þurfa að vera til að þola þessar rosalegu sviptingar.
En aftur að Giljagaur: Systur voru búnar að rifja upp vísuna um hann eftir Jóhannes úr Kötlum. Þær eiga fallegu jólasveinabókina, sem Brian Pilkington myndskreytti. Miklir snillingar, Jóhannes og Brian.
Í kveðskapnum um Giljagaur er tekið fram, að hann vilji helst stela froðunni af mjólkinni. Núna freyðir auðvitað ekki lengur á heimilum þegar spenvolg mjólk bunar í fötu, en systur kunnu að sjálfsögðu ráð við því. Í þeirra huga er froða á mjólk fengin með froðustútnum á espressó-vélinni. Lítið mál að bjarga því
Þær voru afskaplega lukkulegar í morgun með fingurstórar dúkkurnar, sem karlinn skildi eftir, þegar hann hafði troðið í sig smákökum, mandarínu og sleikt alla froðuna úr bollanum.
Elísabet, sem var eitthvað aum í gærkvöldi og með dálítinn hita, kvartaði sáran undan hálsbólgu í morgun og bar sig heldur illa. Við ákváðum að halda henni heima í dag. Sem þýðir að við verðum að fara mjög snemma að sækja Margréti.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það er sjúklega gaman að gefa í skóinn! Ég er búin að gera ráðstafanir til að fá Ara minn (þriggja ára í mars) til að gista hjá okkur eina nótt fyrir jól svo ég geti upplifað enn einu sinni spenninginn og gleðina við að fá í skóinn.
Ungdómurinn minn setur svosem skóinn út í glugga en...........
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 13.12.2007 kl. 09:30
Þarna varð mér alvarlega á í messunni...það er náttúrulega sjúklega gaman að sjá hvað JÓLASVEINNINN gefur í skóinn
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 13.12.2007 kl. 09:46
E-hemm.... verð ég ekki að fjarlægja fyrri færslu?
Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.12.2007 kl. 12:57
Litla skottið Elísabet, sé hún með sömu flensusort og ég þá finn ég til með henni...þessu fylgir andstyggðarhöfuðverkur.
Sakna þess að heyra ekki í jóla læðast um mitt hús seint að kveldi. Hér eru því miður engin börn lengur....
Ragnheiður , 13.12.2007 kl. 17:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.