13.12.2007 | 23:47
Stúfur
Systur eru sammála um eitt og útskýra: Það er svo skrítið að á daginn erum við rosalega spenntar. "Jólasveinninn kemur í kvöld, jólasveinninn kemur í kvöld!". En svo kemur kvöldið og þá erum við alveg, æ, "jólasveinninn kemur í nótt" og á morgnana erum við alveg, "vei, jólasveinninn kom í nótt".
Þær eru spenntar á daginn og glaðar á morgnana, en fremur stressaðar yfir næturvappinu á körlunum.
Stúfur á von á góðu. Þær systur sögðu að hann vildi fá skófir af pönnu, helst það sem brynni við barmana. Gjörasvovel og útbúa þannig pönnu.
Þær vita að jólasveinar eru óskaplega spenntir fyrir mjólkurvörum, svo niðurstaðan, eftir miklar og laaaangar umræður, varð að bræða rjómaost á pönnu. Við gættum þess að smyrja hann vel út á barma, svo Stúfur fengi uppáhaldið sitt, barmaskófir.
Þessi miður snyrtilega panna stendur nú á hellu við arininn, ásamt mjólkurglasi. Systur settu líka góða sleikju þar hjá, svo Stúfur næði öllu af pönnunni. Þær hafa annars töluverðar áhyggjur af honum, enn er spáð miklum veðurofsa og hann svona óskaplega smár. Svo er hann með gráa og ljóta vettlinga á mynd Brians Pilkingtons í bókinni góðu og Margrét vildi endilega finna hvíta vettlinga sem hún á og eru orðnir of litlir á hana. Það er auðvitað engin hemja að arka ofan af fjöllum með vonda vettlinga. Hún hætti nú samt við vettlingaleit þegar við sögðum henni að hann ætti nú ýmsar flíkur sem ekki sæjust á þessari einu mynd, enda hefði hann haft mörg hundruð ár til að sanka að sér prjónaplöggum. "Á hann líka trefil?" spurði hún áhyggjufull og rýndi í myndina. Já, hann á marga trefla. "En Grýla kann sko örugglega ekki að prjóna!" sagði hún.
Þær sofnuðu undrafljótt, eins og öll kvöld á aðventu.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
minn er 8 og verður 9 ára þann 19 þessa mánaðar, hann sagði við mig " ég ætla snemma að sofa því Stúfur er að koma, hann er alltaf svo góður" en hann mun hafa nóg að gera á morgum heimilum í kvöld þar sem það eru örugglega margir með eitthvað gott í gogginn handa honum
allavega voru piparkökur "sérmálaðar" í gærkvöldi úti í glugga hjá mínum peyja...
Guðrún, 14.12.2007 kl. 00:14
Gott
Ég segi stelpunum þetta. Þær höfðu nefnilega töluverðar áhyggjur af að Stúfur fengi hvorki mandarínu né smákökur, eins og Stekkjarstaur og Giljagaur. Ég sagði þeim að hann fengi örugglega eitthvað gott annars staðar og hér höfum við staðfestingu á því 
Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.12.2007 kl. 10:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.