Fjúk

Við vorum því miður of snemma á ferðinni á þessu heimili í morgun. Systur komu skoppandi yfir þegar klukkan hringdi hálf sjö og fjölskyldan var löngu klædd og komin á ról, búin með morgunmatinn, hár- og tannburstun klukkan hálf átta. Kata var farin með stelpurnar í skólann þegar tilkynningin kom um að best væri að halda börnunum heima. Ég hringdi í hana, en það gagnaðist nú lítið því síminn hennar lá á eldhúsborðinu.

Við höfðum reyndar engar sérstakar áhyggjur af veðrinu þegar hún lagði af stað með systur, hérna í Logalandinu er ekkert stórviðri. Að vísu er fjári hvasst niðri í dal við Fossvogsskóla, en ég ætla líka að sækja systur um leið og skólinn er búinn, þær hafa ekkert með það að gera að fara í frístundaheimilið á svona degi.

Ég var komin á fremsta hlunn að sækja þær rétt áðan, enda finnst mér ómögulegt að hlusta á veðrið og vita af þeim í skólanum. Kata benti mér á að þær færu ekki út fyrir hússins dyr og þetta væri örugglega ævintýri fyrir þær, skólastarfið allt í uppnámi og allir í föndri og eintómri hamingju.

Þetta er ábyggilega rétt hjá henni og best að ég reyni að vinna aðeins á meðan þær eru í skólanum. En við vorum samt sammála um að ég myndi fara á fjallabílnum og sækja kríli snemma í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vinna heima? Þú meinar drekka hvítvín og röfla við plönturnar?

Við mæðgurnar ákváðum að óhlýðnast tilmælum lögreglu og drífa okkur í skólann. Enda alltaf logn í Laugardalnum hjá okkur Björgólfi eldri.

Flestir foreldrar ákváðu að fylgja krílunum inn til öryggis, en mér til mikillar furðu sá ég barn sem hafði verið sent eitt og fótgangandi í skólann.

hke (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 10:25

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Kata mætti tveimur krílum þegar hún var á leið frá skólanum, greip þau á flugi, bókstaflega, og kom þeim í skólann. Ekki sniðugt að láta 6 og 8 ára fara ein.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 14.12.2007 kl. 11:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband