20.12.2007 | 09:46
Skólajól
Systur eru á jólaskemmtun í skólanum núna. Þær voru mjög spenntar þegar þær vöknuðu, voru fljótar að klæða sig og svo stóð Kata drjúga stund og gerði þær fínar um hárið. Mikið glaðar þegar komnar voru litlar fléttur, teygjur og spennur um allan koll. Svo spreyjaði Kata glimmer-hárspreyi yfir allt saman. Sex ára glimmersæla, hvorki meira né minna.
Foreldrar nutu þess heiðurs að fá að fylgjast með fyrsta skemmtiatriði jólaskemmtunarinnar, þegar 6 ára krílin spiluðu tvö lög á blokkflauturnar sínar. Fyrst sungu þau reyndar lögin, en spiluðu svo. Stelpur í jólakjólum og strákarnir líka glerfínir, sumir í jakkafötum. Það er eitthvað við litla stubba í jakkafötum sem er alveg ótrúlega krúttlegt.
Eftir jólaskemmtun ætla stelpurnar að koma með mér í Þjóðminjasafnið og svo kíkjum við kannski aðeins í bæinn á eftir.
Getur verið að það verði bara þéttur úði í dag, en ekki hellirigning? Of gott til að vera satt?? Sjáum til...
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þegar kona gengur með barn sér hún það eflaust í hyllingum að setja spennur í hár og velja lítinn jólakjól en sé barnið ekki þesslegt að vilja nokkurn tímann setja spennur í hárið á sér, hvað þá ganga í kjól getur viðkomandi kona fengið mikið út úr því að klæða það í skyrtu og prjónavesti. Það er skemmtilegra en það hljómar í fyrstu. Bráðum bætist annar drengur við fjölskylduna svo það er eins gott að maður fái eitthvað út úr agnarsmáum prjónavestum - ég tala nú ekki um bindi sem smokrað er yfir höfuðið með teygju. Hrein fullkomnun!
GK (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 11:23
Sammála þessu! Tala nú ekki um að setja litla herramenn í íslenska búninginn og silfurnælu í skyrtuklútinn, himneskt. Prjónavesti og lítil bindi eru líka alveg dásamleg á litlum vel greiddum prinsum. Svo eru sumar litlar stelpur sem nenna ekkert að vera með svona hárspennur og dótarý í hárinu og rífa það jafnóðum úr með tilheyrandi argintætu-afleiðingum, móðurinni til mikillar sorgar. Og liggja í gólfinu í fína blúndukjólnum - þær eru nú ekki allar svona litlar penar prinsessur. Reynt að lesa söguna um Buslu til að fá fram kvenlegri hegðun en ekkert gekk. Eru þau ekki dásamleg? Misjöfn eins og þau eru mörg þessar elskur. Drengirnir jafnvel penari og prúðari en stúlkurnar
Kv. Olla.
Olla (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 12:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.