21.12.2007 | 11:01
Draugar
Systur sváfu til rúmlega hálf níu, enda búið að tyggja ofan í þær að í dag væri frí, en samt væri enginn barnatími í sjónvarpinu. Þetta virkar greinilega og verður notað miskunnarlaust um jólin.
Þær eru búnar að vera alsælar þennan morguninn. Marta María nágranni kom til þeirra og allt í einu fylltist húsið af draugum! Þær vinkonurnar sjá draug í hverju horni og hlaupa skrækjandi upp og niður stiga. Eitt skipti, þegar þær stóðu tinandi í miðjum stiga og rýndu niður, í þeirri von að sjá enn einum draugi bregða fyrir, kom púkinn upp í mér þar sem ég sat og pakkaði inn jólagjöfum á efri hæðinni. Ég læddist að stigaopinu og öskraði svo af öllum lífs og sálar kröftum. En hefði betur látið það ógert, því ég held að ég hafi misst heyrn vegna ógurlegu skrækjanna sem bárust frá þremur 6 ára, draugahræddum stelpum.
Núna sitja þær með heitt súkkulaði og nýbakaða kanelsnúða og virðast hafa gleymt öllum draugum. Í bili alla vega. Það gefur mér færi á að fara út í garð og taka heita pottinn í gegn, enda verður hann sko notaður um jólin. Ég vil hins vegar helst hafa snjó og brakandi kulda þegar ég fer í pottinn að vetrarlagi, ekki rigningu, rigningu, rigningu, rigningu og rigningu, eins og verið hefur í allt haust og vetur.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert mikið kvikindi!
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 21.12.2007 kl. 12:29
Hehehe
Ragnhildur Sverrisdóttir, 21.12.2007 kl. 14:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.