22.12.2007 | 00:39
Lykt af laufabrauði
Heimsókn Gluggagægis var tíðindalaus, hann fékk bara sínar smákökur og mjólk og þakkaði pent fyrir sig með litlum gjöfum.
Í dag þreyttist Margrét ekki á að minna á að Gáttaþefur vildi laufabrauð.
Núna er laufabrauð við arininn og vonandi rennur karlinn á lyktina.
Systur voru alsælar að komast í jólafrí. Eftir að Marta María nágranni hvarf á braut um hádegisbil kom María Hrund frænka í heimsókn. Hún býr í Danmörku, en það var samt eins og þær frænkur hefðu síðast sést í gær. Eintóm sæla.
Þær fóru með mér í Kringluna og hjálpuðu til að velja eina jólagjöf. Ég bað þær um að ímynda sér að þær væru 10 ára strákar. Þá upphófust miklir skrækir í aftursætinu. Elísabet var með tagl, svo hún gat ekki verið 10 ára strákur. María var í bleikri úlpu, úff, ekki gat hún þá verið strákur. Margrét var ekki kyrfilega "merkt" kyni sínu að þeirra mati og hún fór á flug í ímyndunarleik, lýsti því yfir að hún vildi sverð og róbót og bíl.
Þrátt fyrir þetta gengu kaupin á gjöfinni vel. Og við notuðum tækifærið og keyptum tvær gjafir til að setja undir tréð í Kringlunni. Þær frænkur lifðu sig mjög inn í það, voru leeeengi að velja réttu gjafirnar, eina fyrir strák og aðra fyrir stelpu.
Síðdegis var afmælisboð hjá herra Sigurði Karli Knútssyni, sem þrátt fyrir svo langt og myndarlegt nafn er bara eins árs kútur. Hann hafði greinilega fengið aðstoð við undirbúning afmælisveislunnar og við tróðum okkur út af alls konar gúmmelaði.
Við Kata fengum smá fullorðinstíma í kvöld, þökk sé Eddu barnapíu, ókum niður í bæ og röltum Skólavörðustíg. Þar eru svo margar og skemmtilegar verslanir. Við fórum reyndar alla leið niður í Iðu við Lækjargötu og þar var ég véluð til að lofa mér í upplestur kl. fjögur á morgun. Allt í góðu með það, ekkert betra að gera tveimur dögum fyrir jól.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hlakka mikið til að lesa bókina þína um jólin. Vona að hún seljist ofboðslega mikið þótt hún hafi verið svona seint á ferðinni. Knús í bæinn. Skrýtið þegar maður hugsar um gjafir fyrir stráka og stelpur ... ég keypti rosaflotta sjóræningjabók fyrir litla frænku mína í jólagjöf en ég hefði aldrei keypt prinsessubókina fyrir lítinn frænda minn. Arggggg!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 22.12.2007 kl. 18:38
Takk, Guðríður.
Þetta er alveg rétt með gjafirnar, ég veit t.d. að margar stelpur voru æstar í sjóræningjabók, Margrét var á tímabili að tala um hana, áður en hún uppgötvaði drekabókina miklu. Það er eins og stelpur teygi sig frekar inn á "stráka-sviðin" en öfugt. Og það er bara okkur fullorðna fólkinu að kenna, við ákveðum að það sé í fínu lagi að gefa stelpu sjóræningjabók, en ekki að gefa strák prinsessubók.
Gleðilega rest
Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.12.2007 kl. 01:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.