Föst á náttfötum milli greina? Jólin, jólin...

Enn einn yndislegur dagur Smile

Systur byrjuðu daginn á að skreppa í náttfatapartý til Mörtu Maríu vinkonu og nágranna og fjölskyldu hennar. Mikið fjör og foreldrum bannað að láta sjá sig fyrr en hálfum öðrum tíma síðar. Nágrannarnir á númer 2 hafa gert þetta áður og ég minntist þess að hafa mætt til þeirra í venjulegum fötum, en uppgötvað þá að allir aðrir voru í náttfötum. Við Kata ætluðum sko ekki að brenna okkur á þessu aftur, fórum í nátttreyjur, grófum upp náttbuxur (eða ég, Kata átti einhverjar nýlegar og flottar) fórum svo í náttsloppa og steðjuðum yfir klukkan hálf tólf. Gleði okkar var auðvitað ósvikin þegar við uppgötvuðum að við vorum einu foreldrarnir í náttfötum Grin Líklega hefur mig misminnt eitthvað, það kemur stundum fyrir Blush Svo eru kerlingar að kvarta sem mæta í svipuðum kjólum á árshátíð! Þær eru þó báðar klæddar miðað við tilefni!! Nágrannarnir kipptu sér auðvitað ekkert upp við klæðaburðinn, það fólk er farið að kannast þokkalega við okkur.

Eftir gott stopp á númer 2 fórum við heim, enn í náttfötunum að sjálfsögðu. Við dúðuðum okkur vel og vandlega og ókum upp í Öskjuhlíð. Þar örkuðum við um göngustíga allt þar til systur sáu kanínuspor sem þær ákváðu að rekja.

Því miður hafði þetta smávaxna kanínukvikindi farið um allan skóg, undir neðstu grein hér og milli þúfna þar. Systur fóru létt með að elta slóðina, Kata tróðst á milli greina og ég velti fyrir mér hversu neyðarlegt það yrði þegar björgunarsveit yrði kölluð út til að aðstoða konu sem sæti föst í greinum í Öskjuhlíð. Sú tilhugsun gaf mér kraft til að brjótast áfram.

Núna er allt með kyrrum kjörum í Logalandinu, systur leika með dót og mömmur lesa jólabækur. Önnur alla vega, hin bloggar eins og venjulega. Við ætlum að fá hangikjöt hjá tengdó í kvöld, svo jólasælan er ekki búin enn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

H'ihí, þið eruð krútt, uppátækjasöm sollis.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.12.2007 kl. 11:39

2 Smámynd: Sigþóra Guðmundsdóttir

Gleðilega jólasælu!

Sigþóra Guðmundsdóttir, 27.12.2007 kl. 15:56

3 identicon

Gleðileg jól allar

Sé þig í anda föst í trjánum Klaufa mamma

Kveðja

JFK

J Friðrik Kárason (IP-tala skráð) 27.12.2007 kl. 16:16

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Takk, takk og gleðilega rest  

Ég var óskaplega fegin að komast af sjálfsdáðum úr þessum frumskógi. Ég sé mig líka í anda, þar sem björgunarlið hefði beitt klippum til að losa mig úr greinunum. Og á mbl.is hefði verið sagt frá öllu saman: "Konan var nokkuð þrekuð þegar að var komið. Hún var komin í sjálfheldu, með annan fótinn í kanínuholu en hinn var fastur í neðstu greinum grenitrés og gat hún enga björg sér veitt. Konan gat enga skýringu gefið á þessu feigðarflani. Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks að ætla sér ekki um of í jólagleðinni."

Jamm, svona hefði þetta getað farið. Ég fer varlega næst.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.12.2007 kl. 00:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband