Fasteignamógúlar í Logalandi

Þegar við vöknuðum í morgun vildi Margrét strax kanna hvort hleðslubatteríið í fína, fjarstýrða bílnum hennar hefði hlaðist um nóttina. Ég hafði gert tilraun til hleðslu nóttina áður, en gleymdi þá að fjarlægja einhvern plastflipa, svo batteríin hlóðust ekki. Mér rann því blóðið til skyldunnar, staulaðist fram út og kom tveimur fjarstýrðum bílum í gagnið. Gaman að bauka við slíkt eldsnemma morguns á náttserknum. En systur voru alsælar, enda eru þetta flottir bílar, með skærum framljósum og sýna alltaf stefnuljós þegar þeir beygja. Sem er auðvitað ekki mjög þjóðlegt, en samt svo ægilega pedagógískt og gott. Kristín Þorsteins væri lukkuleg með svona bíla á heimilinu.

Á meðan systur klesstu á veggi á neðri hæðinni fórum við Kata enn og aftur að bauka í eldhúsinu. Við vorum með dálítinn hádegisverð og heiðursgestirnir voru foreldrar mínir, sem áttu 54 ára brúðkaupsafmæli. Hálf öld og fjórum árum betur. Ef einhvern tímann var tilefni til hátíðarhalda...

Eftir hádegisverð tókum við því syndsamlega rólega. Kata brá sér af bæ í vinnuerindum, en ég og stelpurnar lögðumst í Shrek jólamyndina sem afi Torben tók upp fyrir okkur og lásum enn meira í jólabókum. Svo enduðum við daginn á Monopoly, þar sem mæðgurnar gjörsamlega rústuðu mér. Elísabet lagði undir sig heilu hverfin og Kata og Margrét fylgdu henni þétt eftir. Ég náði að eignast eina götu, en annars færði ég mig bara úr fangelsi á áhættureiti, og þaðan aftur í fangelsi, eða stoppaði við hótelin þeirra þriggja. Svo rammt kvað að hörmulegu gengi mínu að systurnar voru gjörsamlega miður sín. Ég sagði þeim að þetta væri allt mjög normal og til marks um heppni mína í ástum. Þeim fannst ég skrítin og héldu áfram að hugga mig. Kata hrærðist ekki til neinnar vorkunnar fremur en fyrri daginn, það ískraði bara í henni þegar ég varð að reiða af hendi síðustu 27 þúsund krónurnar fyrir viðdvöl á einni götunni hennar. Voða skemmtilegt spil eitthvað!

Þetta er allt Möggu systur að kenna, hún gaf fjölskyldunni þetta spil í jólagjöf, örugglega í þeirri veiku von að við myndum taka okkur til og friða allan Laugaveginn eins og hann leggur sig. Elísabet keypti hins vegar Laugaveginn og græddi á tá og fingri. Ef þetta hefði verið í raunheimum, þá hefði hún áreiðanlega rifið hvern timburkofa við götuna og byggt hagkvæmara á reitnum. Hafðu það, Magga systir!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hehehehe æj ekki gekk vel hjá þér og enn verr fór plottið hjá Möggu systur hehe...æj svo er maður svo illgjarn að maður skemmtir sér hérna yfir óförum þínum...Sorry

Ragnheiður , 28.12.2007 kl. 00:44

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Átti 10 ára brúðkaupsafmæli í gærhehmm

Er svona sjálf í Matador, fer inn og út úr djeilinu.  Er hvorki rík í spila- né raunheimum, sko af fjármunum en þess ríkari af kærleiksríku fólki.

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.12.2007 kl. 11:08

3 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

 góð hugmynd - þetta með bílana sem gefa stefnuljós við hverja beygju - og mér svo sannarlega þóknanlegt!!

Sú yngir bað um og fékk á sínum tíma fjarstýrðan bíl í jólagjöf en ekki man ég hvort hann var svona mikið tryllitæki.

En með Mattadorið - sýnir greinilega að þú átt ekki að vera að vasast í viðskiptum, hæfileikar þínir liggja greinilega á öðrum sviðum.....

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 28.12.2007 kl. 13:47

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Til þess eru ófarir mínar að skemmta sér yfir þeim, Ragnheiður. Mér sýnist það alla vega mottóið á þessu heimili, svei mér þá.

Til hamingju, Jenný! Aðeins 44 ár í viðbót til að jafna foreldra mína. En þá verða þau reyndar komin í 98 ár...

Alveg vissi ég að þú féllir fyrir þessu, Kristín. Ég gleymdi líka að taka fram að auðvitað loga bremsuljósin þegar bílarnir hægja á sér. Ég er nú alveg undrandi á þessu, þetta voru hræbillegir bílar á tilbuds-pris, en svona líka flottir og góðir.

Ég mun halda mig fjarri öllum hræringum í viðskiptalífinu. Ég er ein af þeim sem hefði verið líkleg til að leggja milljónir í FL Group í sumar og væri þá líklega í tjaldi í Laugardalnum núna. Kata bjargar mér reglulega frá slíku feigðarflani.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.12.2007 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband