Músaspor í frosti

Fjölskyldan brá sér í Skorradalinn á föstudagskvöld. Þar gistum við í sumarbústaðnum hjá guðmæðrunum Addý og Báru, í afskaplega góðu yfirlæti. Systurnar tala alltaf eins og þær eigi þennan bústað líka, enda er svefnloftið greinilega alveg frátekið fyrir þær, með alls konar dóti, uppsettu kúlutjaldi og Guð má vita hvað. Guddurnar gáfu þeim ný vasaljós þegar við mættum á staðinn á föstudaginn, svo það er ekkert lát á dekrinu á þeim bænum.

 

Á laugardagsmorgun skreið ég upp á svefnloft til systra, sem tóku mér með kostum og kynjum, settu mig í miðjuna, breiddu vel yfir mig og svo steinsofnuðum við allar þrjár. Það endaði með að við sváfum allar sex fram undir hádegi, svei mér þá. Elísabet spratt þá upp og tilkynnti að nú fengi hún egg og beikon, sem er í alveg sérstöku uppáhaldi. Ég spurði hvernig hún vissi það. “Við fáum alltaf egg og beikon í sumarbústaðnum!” sagði hún, mjög undrandi á spurningunni. Þetta reyndist auðvitað rétt hjá henni. Addý og Bára klikka nú ekki á þessu.

 

Þegar við loks fórum út fyrir dyr var ægilega kalt, en við vorum rækilega dúðaðar. Við eyddum drjúgum tíma í að henda klakahellum út á frosið vatnið og horfa á þær splundrast eins og kristal. Flottast var þegar við fundum klaka sem hafði malarhrúgu að geyma, þá brotnaði ekki bara klakinn í þúsund mola þegar hann skall úti á ísnum, heldur rúlluðu líka smásteinar í allar áttir.

 

Við þurftum líka að rannsaka músaspor. Þau voru fá við sumarbústað guðmæðra, en við suma aðra var allt útsporað. Margföld slóð lá undir hús, út aftur, undir tré skammt frá, eða undir gólfið í bátaskýlinu. Mikið fjör að elta þetta, en ég festist ekkert í greinum að þessu sinni af því að ég gat alltaf beint athygli systra að nýjum sporum á greiðfarinni slóð.

 

Við urðum því miður að kveðja Skorradalinn um þrjúleytið og bruna í bæinn, enda fórum við í Þjóðleikhúsið síðdegis og sáum Skilaboðaskjóðuna. Mikið snilldarstykki og ég efast um að stelpurnar hafi skemmt sér betur en mæðurnar. Við þekkjum öll lögin, enda hefur diskurinn verið spilaður fram og til baka á heimilinu undanfarin fjögur ár, svo það var frábært að sjá Putta, Möddumömmu, dvergana Dreitil og Snigil og félaga, nátttröllið og allar ævintýrapersónurnar vakna til lífsins.

 

Eftir svona snilldarleikhúsferð var alveg rakið að borða önd á danskan máta hjá tengdó. Enginn svikinn af þeim trakteringum.

 

Gærdagurinn var innidagur og ekki að ástæðulausu. Púff, hvað ég er orðin leið á roki og rigningu. Vissulega var veðrið jólalegt og ljúft yfir blájólahátíðina, en þetta eru bara eintóm leiðindi. Loks þegar við fórum út, um kvöldmatarleytið, var allur snjór horfinn. Við gátum þó  huggað okkur við ljúfa fiskisúpu í saumaklúbbs/og maka/ og barna –boði hjá gamla vinkvennahópi Kötu.

 

Systur eru í góðu formi þessa dagana. Þær njóta þess að vera í fríi og það er líka alveg einstaklega gaman að vera með þeim í fríi. Þær eru orðnar svo stórar og skemmtilegt kompaný.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er gefandi að lesa um hvunndaginn ykkar.  Mér líður stundum eins og ,,fjarstöddum" heimilisvini svo grípandi eru skrifin, svo full af kærleika og eftirtekt.  Ég þakka fyrir að fá að kíkja svona ,,óboðin" og óska ykkur fjölskyldunni gleði á nýju ári.

Bestu kveðjur

Unnur Sólrún

Unnur Sólrún (IP-tala skráð) 31.12.2007 kl. 12:28

2 Smámynd: Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir

Gleðilegt ár kæra Ragnhildur - takk fyrir góð kynni á árinu sem er að líða. Svo tökum við það þann ellefta

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 31.12.2007 kl. 15:08

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Innilegar nýárskveðjur í kotið! Hlakka til að hitta ykkur Ólínu þann 11. Vona að þið verðið samt ekkert í allt of miklu stuði þá ... hmmmmm ...

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 31.12.2007 kl. 15:30

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Gleðileg jól og takk fyrir hlýjar kveðjur.

Mikið vildi ég geta lofað bæði Ólínu og Gurrý öllu fögru, en það er bara ekki hægt. Ég tek því undir hvatningaróp Ólínu og urra í átt að Gurrý. Dæs... það er bara ekki hægt að gera öllum til geðs.

Hlakka til að sjá samherja og andstæðinga 11. janúar

Ragnhildur Sverrisdóttir, 1.1.2008 kl. 02:40

5 identicon

Gleðilegt ár kæra fjölskylda. Gaman að heyra af ykkur og Addý og Báru Veru-ljósmyndara á músa-njósnum - vekur upp gamlar minningar úr sumarbústaði í Borgarfirðinum, þar sem ég sit og bíð eftir syni mínum á nýársnótt. Líka svo stutt í minningunni frá því að við mæðginin sáum fyrstu útgáfu af Skilaboðaskjóðunni í Þjóðleikhúsinu. Gleymi því líkast til aldrei þegar Birkir hrópaði hástöfum um leið og Maddamamma birtist á sviðinu: "Hún er alveg eins og hún Tonja mín!"

Sonja B. Jónsdóttir (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 07:30

6 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gleðilegt ár til þín og þinna Ragnhildur og takk fyrir einstaklega skemmtileg bloggkynni á gamla árinu.  Þroskasaga stelpnanna þinna hafa svo sannarlega auðgað líf mitt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 1.1.2008 kl. 09:34

7 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Gleðilegt ár og takk fyrir góða blogg-vináttu.

Ég held áfram að reyna að bjarga heiminum...

Þetta verður erfitt í næsta Útsvari!!! Fyrirgefðu Gurrý mín en vestfirðingurinn í mér krefst þess að ég haldi með Ísafjarðarliðinu.

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 1.1.2008 kl. 17:16

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Gleðilegt ár!! ætlaði ég að segja í fyrri færslu, en ekki gleðileg jól, þótt ég voni svo sannarlega að þið eigið gleðilega rest.

Anna, mig langar nú ekkert til að rifja upp hvernig fór þegar þú veðjaðir á Bjarna í REI, en kannski er hans tími kominn núna. Hver veit?

Gaman að heyra í þér, Sonja. Ég er viss um að Skilaboðaskjóðan er þér enn í fersku minni, þetta er algjör snilld.

Og takk sömuleiðis, Jenný  Ég les bloggið þitt daglega, ekki síst vegna einlægrar aðdáunar á litlu nöfnu þinni.

Bestu þakkir fyrir góða bloggviðkynningu á nýliðnu ári, öll sömul. Ég er alsæl að halda svona sambandi við gamla vini og nýja. Hér er ekkert sem heitir að vera óboðin.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 1.1.2008 kl. 17:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband