Jólafríið búið

Síðasti frídagur systra á enda runninn. Þær hafa notið þess að vera í fríi, en við þurftum virkilega að taka á til að snúa sólarhringnum við, þær voru farnar að sofa æ seinna á kvöldin og kúrðu fram undir hádegi. Nú tekur alvara lífsins við á morgun, en svo kemur reyndar tveggja daga frí í kjölfarið.

Við slæptumst fram eftir degi hérna heima. Kata var að kljást við eftirköstin af þessum bilaða bakverk sem hefur heltekið hana síðustu daga. Hún er nú farin að ganga eðlilega, svo þetta er allt að koma. Hún tók því samt rólega og var heima í hlýjunni á meðan ég skrapp með systur í Gerðuberg. Þar er hægt að skoða myndir úr íslenskum barnabókum og meira að segja blaða í bókunum og lesa þær ef maður vill. Við fórum afar hægt yfir sýninguna, enda þurftum við að lesa sumar bækurnar, sem við höfðum ekki séð áður, og svo var auðvitað dálítið merkilegt að sjá stórar myndir úr þeim bókum sem systur eiga.

Þegar við höfðum mjakast um jarðhæðina fórum við upp á næstu hæð, en þar er sýning Sigrúnar Eldjárn og það var reyndar hún sem við ætluðum okkur að sjá. Á efri hæðinni tók Málfríður við okkur í allri sinni dýrð, bíllinn hennar stóð þar líka og krakkar máttu príla í honum. Mamma Málfríðar var inni í húsinu þeirra, skreytt eins og jólatré, rétt eins og í einni bókinni. Svo var eldflaug, sem krakkar gátu skriðið inn í og margt, margt fleira skemmtilegt. Systur voru sammála um að þetta væri skemmtilegasta sýning sem þær hefðu nokkru sinni séð.

Ekki minnkaði fjörið þegar við fórum í Listasmiðjuna. Þar gátu systur litað, klippt og límt að vild. Heilu kassarnir af glimmer-lími og dollurnar af alls konar glitri og pallíettum. Draumaheimur 6 ára listamanna Wink

Við vorum einu gestirnir á sýningunni klukkan fjögur á fimmtudagseftirmiðdegi, sem var ekkert verra. Við höfðum okkar hentisemi með alla hluti, hengdum upp listaverkin okkar og kvittuðum í gestabók. Við hefðum örugglega verið enn lengur ef Margrét hefði ekki þurft að fara til læknis. Hún hefur verið með eyrnaverk undanfarið og hann ætlaði sér greinilega ekki að fara af sjálfsdáðum.

Þegar við komum heim kippti ég framtönn í efri góm úr Elísabetu, enda var tönnin sú farin að pirra hana verulega, dinglaði laus og var öll eitthvað asnaleg við hliðina á skarðinu eftir hina framtönnina. Elísabet rumskaði áðan og lýsti því þá yfir að það væri miklu betra að sofa með stórt skarð.

Þær eru spenntar að fara að byrja aftur í fimleikum og fótbolta. Þær gáfu hvor annarri fimleikaboli í jólagjöf. Það var frekar fyndið, því hvorug vissi að hin myndi gefa henni sömu gjöf. Við Kata létum þær fá misstóra kassa til að pakka bolunum í og hamingjan var ekki lítil þegar þær uppgötvuðu, hvor um sig, að þær fengu sama daumabolinn og þær gáfu. Nú geta þær ekki beðið eftir að fara á fyrstu æfinguna eftir jól, því hingað til hafa þær æft í stuttbuxum og bol. Sem er fínt á fótboltaæfingar, en alveg hrikalega glatað á fimleikaæfingar.

Æ, þær eru báðar eitthvað ruglaðar í ríminu núna, Elísabet hefur komið þrisvar fram núna undir miðnættið og segist ekki geta sofið, Margrét vaknaði einu sinni og tók undir þetta, hún gæti bara alls ekki sofið. Hún er reyndar löngu sofnuð aftur, en Elísabet er eitthvað vansæl. Eða jafn vansæl og hún verður, þetta ljós. Það er engin furða þótt þær þurfi að vinda ofan af ósiðunum sem þær hafa tekið upp um jólin. Það verður fróðlegt að sjá hversu sprækar þær verða klukkan sjö í fyrramálið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Voru þetta ekki bara sykurfráhvörf (ullabjakksfráhvörf) hjá henni Elsísabetu?  Líkaminn þarf að jafna sig eftir hátíðahöldin.

Knús á fimleikadrottningarnar.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.1.2008 kl. 09:36

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þetta hafa áreiðanlega verið eftirstöðvar ullabjakk-væðingar jólanna. Ekki spurning. Í morgun, þegar hún var búin að borða hreina jógúrt með vínberjum út í lýsti hún því yfir, að henni þætti gott að fá svona jógúrt með sírópi. Ég benti henni á að það hefði ekki verið neitt síróp út á, bara sæt vínber og hún varð alveg undrandi

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.1.2008 kl. 10:24

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hahahaha, það er kominn tími á hafragraut.  Ójá og hjá mér líka.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.1.2008 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband