Hversdagurinn

Systur voru nokkuð brattar í morgun. Það þurfti að vísu nokkrar fortölur til að koma þeim framúr, en það er nú ósköp skiljanlegt þegar vindurinn gnauðar og rigningin lemur gluggana einu sinni, einu sinni enn. En þær voru glaðar og spenntar að fara í skólann aftur.

Ég held að þær séu búnar að fá nóg af ullabjakk-væðingu jólanna Wink Þær tóku því alla vega fagnandi að fá hreina jógúrt og vínber í morgunmatinn. Svo verðum við að taka okkur á og fara að malla hafragraut á morgnana, það kjarnafæði ætti að duga þeim vel.

Í dag ætlum við að nálgast fínu kuldaskóna, sem Knútur frændi keypti fyrir okkur í Ameríkunni. Við Kata uppgötvuðum nefnilega um jólin, að systur eiga ekki almennilega kuldaskó. Við keyptum vissulega skó fyrir þær í ágúst, sem áttu að duga út veturinn, en þeir eru of þröngir til að þær geti með góðu móti verið í hosum og svo eru þeir bara ekki nógu hlýir. Þessari staðreynd áttuðum við okkur hins vegar ekki á fyrr en núna um jólin, sem helgast auðvitað af því að rigningin hefur verið allsráðandi og þær hafa nær alltaf farið í hosum og stígvélum í skólann. Hverskonar vetur er það eiginlega, þegar aldrei þarf að draga fram kuldaskó, bara stígvél? Ömurlegur, svo einfalt er það. En Knútur fór sem sagt í búð fyrir okkur í Ameríkunni og nú er spurningin bara hvort einhver not verða fyrir kuldaskó það sem eftir lifir vetrar.

Ég er að setja mig í vinnustellingar aftur. Margar, margar bækur bíða þess að vera skrifaðar og ég ætla að skrifa nokkrar þeirra. Byrja alla vega á einni núna. Svo á ég eitt handrit nánast klárt frá síðasta ári og sú bók kemur út með vorinu. Ég get alveg vanist þessu, svei mér þá. Það hentar mér ágætlega að sitja yfir svona verkefnum, fremur en að skrifa fréttir eða greinar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ræfilstuskurnar - það er erfitt að koma sér af stað fyrsta daginn. Mín reynsla er sú að þetta er erfitt en þau eru furðufljót að komast á rétt ról. Ég er allavega á því að það verði að slaka á taumnum þegar þau eru í fríi. Í rútínunn þá er maður upptekinn við að koma þeim í rúm á réttum tíma og framúr á réttum tíma og það er yndislegt þegar hægt er að slaka á.

Hér voru stórfenglegar yfirlýsingar hjá unglingunum mínum að nú skyld sko vakað og nú ætti sko að sofa út. Og sú varð raunin. Og ég veit svo sem ekki hvenær þær gengu til náða því við vorum iðulega sofnuð þegar þær slökktu á tölvum og sjónvarpi. 

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 4.1.2008 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband