Stafarugl

Ég rauk í Fossvogsskóla í hádeginu að sækja Elísabetu, sem hafði kastað upp stafasúpu og brauði. Kastaði bara upp heilu orðunum, misskiljanlegum að vísu.

Hún er hress að sjá hérna heima núna. Getur verið að barnið sé hætt að þola normal mötuneytismat eftir veislu síðustu tveggja vikna? Frown

Þessu verður mætt af hörku. Hafragrautur á morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

það er nú voðalegt að gubba stafasúpu !

Ragnheiður , 4.1.2008 kl. 12:59

2 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

þú verður bara að senda barnið með rjúpu, risalamand og mackintosh á mánudaginn, trappa hana niður ...

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 4.1.2008 kl. 13:05

3 Smámynd: Turetta Stefanía Tuborg

Gastu ekki lesið eitthvað út úr þessu.Hver veit nema þarna sé komin áður óþekkt aðferð við að spá.

Turetta Stefanía Tuborg, 4.1.2008 kl. 13:06

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég ætla að reyna að trappa hana niður yfir helgina, rétt eins og ég reyndi í morgun, þegar hún fékk sæt vínber út í jógúrt í stað sykursætunnar um jólin. Kannski lauma ég bara Makk-í-dós í nestisboxið? (Margrét kallar Macintosh Makk-í-dós, sem mér finnst alveg brilljant)

Gott að átta sig á tekjumöguleikunum í þessu:

Gefið barnið stafasúpu og eitt glas af kóki.

Hristið vel.

Lesið spádóm sem birtist á gólfi við tær barns

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.1.2008 kl. 13:10

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þorrí en hef ég misst af einhverju?  Hvað í áranum er stafasúpa?  Á árum mínum sem læknaritari á neurólógíunni hét orðaruglingur, orðasalat? Erum við með eitthvað svipað hérna? Plis tell.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.1.2008 kl. 13:57

6 Smámynd: Ragnheiður

í stafasúpu eru smáir pastastafir, börnum þykir verulega gaman að borða þetta. Stundum svo gaman hjá mínum að súpan var eiginlega orðin köld...allir að finna sinn staf og stafa eitthvað í diskinum

Ragnheiður , 4.1.2008 kl. 14:40

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Auðvitað á blessað barnið að njóta vafans.... nei, annars, það er ekkert að henni, hún er búin að vera fantahress og upp um alla veggi hérna heima  Ég er hins vegar óskaplega stolt að hún skuli vera svona meðvituð og menntuð eitthvað í sínum uppköstum, þetta er svo miklu menningarlegra en venjulegt skyrgubb.

Það kom líka upp úr dúrnum að hún var á sinni þriðju súpuskál. Líklega hafði hún bara fengið of mikið, svo það flæddi út úr. Búin að borða allt pínulitla pasta-stafrófið tvisvar og fékk bara nóg!

"Að kunna sér hóf" og "magamál" eru lausnarorðin. Þau hafa ekki verið rædd síðan einhvern tímann löngu, löngu fyrir aðventuna.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.1.2008 kl. 15:40

8 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Stafasúpa og stafablöðin...... er samhengi þarna á milli?

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 4.1.2008 kl. 17:34

9 Smámynd: Elín Sigríður Grétarsdóttir

barnið er greinilega stafasjúkt

Elín Sigríður Grétarsdóttir, 4.1.2008 kl. 22:01

10 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég gætti þess reyndar að spyrja Elísabetu ekki nákvæmlega hvaða stöfum hún hefði kastað upp. Margrét stafar nefnilega alla hluti (heilsar manni til dæmis með stafaromsunni "h-æ, m-a-m-m-a") og það hefði áreiðanlega orðið frekar pirrandi fyrir Elísabetu ef systir hennar hefði stafað gubbið hennar aftur og aftur

Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.1.2008 kl. 22:43

11 Smámynd: Ragnheiður

Hehehe það er ekki víst að þolinmæðin hefði dugað á þá stöfun. Ég er enn að hlæja að tilvonandi spádómum....sem innihalda kókglas..stafasúpu og hristing.

Ragnheiður , 5.1.2008 kl. 00:31

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Jóna Á. Gísladóttir, 5.1.2008 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband