6.1.2008 | 01:15
Sjö og fjórtán
Við Kata fórum út á lífið í kvöld, enda eigum við 7 ára brúðkaupsafmæli. Það er víst ullar-afmæli, sem Kata leysti með ótæpilegum innkaupum á útsölum þar sem sumt var úr ull. Alltaf rómantísk, þessi elska. Reyndar eigum við bráðum 14 ára sambúðarafmæli, en það telst víst ekki með.
Við fórum á Humarhúsið og það var bara dásamlegt. Humar í forrétt og humar í aðalrétt og hvítvín til að skola öllum þessum humar niður. Ingibjörg var þar með Eyþóri sínum og sagðist lesa bloggið. Kveðja til hennar
Við fórum svo á Ölstofuna og þar var fullt fjölmiðlafólk. Svo fórum við á Vínbarinn og þar var fullt fjölmiðlafólk. Óskaplega heimilislegt
Þegar við komum heim sagði Unnur barnapía okkur að systur hefðu verið dásamlegar. Eins og við vissum það nú ekki. Það var víst töluvert sprengt hérna í nágrenninu og Elísabet tilkynnti að það ætti að taka í lurginn á þeim sem það gerðu. Og bætti svo við: "Veistu hvað það þýðir? Það þýðir að lúskra á öllum líkamanum."
Ekki veit ég hvaðan barnið hefur þetta
Gott kvöld. Góð sjö ár. Og góð fjórtán ár, ef út í það er farið
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Innilega til hamingju með brúðkaupsafmælið!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 6.1.2008 kl. 01:19
TAKK
Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.1.2008 kl. 01:26
Ég er svo lummuleg (enda ógift) að ég ætla að óska til hamingju með árin 14 ....
Ragnheiður , 6.1.2008 kl. 01:30
ÚPS
Kata er brjáluð yfir ullar-fata kommenti
Segir að ég geti prísað mig sæla að hún hafi ekki keypt eintóm ullarnærföt í tilefni dagsins, heldur flotta kjóla og peysur. Og svo gaf hún mér yndislegan blómvönd, bara svo það sé á hreinu
Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.1.2008 kl. 01:35
Til hamingju mín kæra með bröllopsafmælið. Átti 10 ára slíkt þ. 27. des. Ætluðum að gera eitthvað en erum ekki rómantískari en svo að við gleymdum því
Mig langar að taka í lurginn á tröllinu hérna fyrir ofan mig. ARG
Knús á famílíu
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.1.2008 kl. 12:19
Takk, Jenný
Og blessuð vertu ekki að eyða kröftum á nátttröll. Þau daga uppi fyrr eða síðar.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 6.1.2008 kl. 13:18
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.1.2008 kl. 14:03
Innilega til hamingju!
Vonandi voru þetta ekki svona "styngu" föt... næsta ár er bronsbrúpkaup
Turetta Stefanía Tuborg, 6.1.2008 kl. 15:41
Innilegar hamingjuóskir með brúðkaupsafmælið - og að sjálfsögðu með öll árin 14......
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 7.1.2008 kl. 07:58
Takk fyrir allar góðar óskir
Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.1.2008 kl. 11:02
Innilegar hamingjuóskir með brúðkaupsafmælið. Og sambúðarafmælið. Hafið það sem allra best á nýja árinu, kæra fjölskylda í Logalandinu. Alltaf ánægjulegt að lesa færslurnar þínar, Ragnhildur. Takk og kærar kveðjur.
Auður (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 21:08
Hamingjuóskir til ykkar með daginn.
Þær(stelpurnar) eru greinilega hamingjusöm og heilbrigð börn og fá þá örvun og ást sem mun skila sér í framtíðinni. Hvað sem fávísum pungrottum finnst.
Kv Ásdís
Ásdís U Bergþórsdóttir (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 23:07
Takk
Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.1.2008 kl. 23:35
Haha ! Takk fyrir kveðjuna og kvöldið - OG þá sérstaklega flugeldasýninguna sem þú pantaðir fyrir Kötu
Og enn og aftur til hamingju með daginn
kveðja Inga
Ingibjörg (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 23:05
Takk, Inga.
Gaman að þið gátuð notið flugeldasýningarinnar með okkur
Ragnhildur Sverrisdóttir, 9.1.2008 kl. 15:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.