7.1.2008 | 00:46
Ljós í myrkri
Við borðuðum kvöldmatinn snemma og fórum svo í langan göngutúr um hverfið. Þetta líktist einna helst gamlárskvöldi, svei mér þá, og greinilegt að margir áttu birgðir af flugeldum, tertum og blysum.
Systur voru ánægðar með þessi jólalok. Þegar við komum heim hjálpuðu þær mér að fjarlægja jólasveininn, sem hefur klifrað upp og niður upplýst reipið sitt fyrir framan hús alla jólahátíðina. Við ákváðum hins vegar að leyfa ljósunum að sitja aðeins lengur á kofanum þeirra. Þau lýsa upp garðinn og varpa bjarma inn í herbergið til systra. Notalegt í svartasta skammdeginu.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Æi, ég er nú ekki þroskaðri en svo að það er alltaf einhver tregi í mér þegar jólin eru búin, jafnframt feginleikanum auðvitað. Hm... er kona flókin? Jabb sennilega.
Njóttu dagsins mín kæra Ragnhildur.
Jenný Anna Baldursdóttir, 7.1.2008 kl. 08:40
Sömuleiðis, sömuleiðis, sömuleiðis (lesist: ég er líka tregafull, ég er líka fegin og ég vona líka að þú njótir dagsins)
Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.1.2008 kl. 11:01
Ómæ ómæ - hvað ég er hjartanlega sammála, er svona gott/vont ástand
Frábært að fá rútínuna á aftur en samt svo vont að sjá á eftir litadýrðinni og ljósunum ofan í kassa!!!
Verst reyndar að kveðja "börnin"
- tvö af þeim eldri fóru heim til Íslands aftur í gær eftir að hafa eytt með okkur hátíðardögunum í útlöndum. Og svo byrjaði skólinn hér aftur í dag, hjá þeim þremur yngri og þá er allt komið í rútínu - voru jafn svifasein framúr hér í morgun eins og systur voru s.l. föstudag á þínum bæ. (Vona svo sannarlega að það verði það eina sem verður eins - og öllu stafasúpugubberíi verði sleppt
)
Gleðilegt nýtt ár til ykkar frá Þýskalandi og Mínar innilegustu hamingjuóskir til ykkar Kötu bæði með sjö og fjórtán
Guðný Ósk (IP-tala skráð) 7.1.2008 kl. 11:43
Bestu þakkir, Guðný Ósk, og allar góðar óskir héðan til Þýskalands.
Dagurinn byrjaði ekki vel, við grjótsváfum yfir okkur í fyrsta sinn frá því að skóli hófst sl. haust. Hrukkum upp rétt fyrir kl. 8 og systur komu korteri of seint í skólann. Ég vona að það komi ekki að sök, mér sýndist dæmið á töflunni vera 2 plús 2 og það kunna þær reyndar
Ragnhildur Sverrisdóttir, 7.1.2008 kl. 13:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.