7.1.2008 | 23:42
Fimar og fluglæsar fótboltastelpur
Systur voru alsælar eftir skóladaginn. Þær höfðu líka farið í dansklúbb í frístundaheimilinu, en þar kenndi 8 ára stelpa þeim þá dansa sem hún hafði lært. Mjög kúl að læra dans af eldra fólki.
Þegar þær komu heim vildu þær ólmar lesa lestrarbækurnar sem þær fengu í morgun. "Ég ætla að lesa alla bókina mína!" sagði Elísabet harðákveðin og lét ekki sitja við orðin tóm. Hún hefur stundum tekið bækurnar í áföngum, en núna er lesturinn farinn að ganga svo vel, að hún vill drífa þetta af. Verst finnst henni að hún nær systur sinni ekki í bráð. Margrét var fljótari til en hún í haust og er komin nokkrum lestrarheftum á undan. Hún les alltaf bækurnar sínar í einni lotu, svo bilið milli þeirra minnkar ekkert. Elísabetu er nú ekkert illa við það, svona í alvöru talað, hún er svo upptekin af hversu vel henni gengur að hún veltir þessu ekkert fyrir sér. Og Margrét sæl með sitt, eins og venjulega.
Þær fóru í fimleika síðdegis og voru afskaplega stoltar í nýju fimleikabúningunum. Þær ætla sko aldrei, aldrei aftur að fara í stuttbuxum og fótboltabolum
Á morgun koma þær heim með stafablað. Loksins, loksins! Ég hef þurft að bíða svoooo lengi...
Og svo er fótbolti á morgun, eftir langt hlé.
Góður dagur framundan.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú að bíða eftir stafablaði ! En ræfilsins ég þá !? Búin að taka jólasveinafærslur í fóstur í stafablaðaskorti, ég legg til að ákveðin börn, stúlkubörn í Fossvogi fái ekki framvegis jóla-páska eða sumarfrí í skólanum
Bíð spennt !
Ragnheiður , 8.1.2008 kl. 00:41
Ég má til með að benda þér á eina óskaplega leiðinlega staðreynd: Sá dagur mun renna upp að þær klári blessað stafrófið. Það er auðvitað ekki komið að því enn, en ég vildi bara vera alveg viss um að þú gerðir þér grein fyrir þessu. Sjálf á ég bágt með að sætta mig við þetta. Það kemur hins vegar áreiðanlega eitthvað annað í staðinn
Ragnhildur Sverrisdóttir, 8.1.2008 kl. 09:34
Æj úpps....
Við sjáum hvað gerist í staðinn, þá lesa þær bækur og eins víst að það komi ritdómar hehe
Ragnheiður , 8.1.2008 kl. 10:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.