8.1.2008 | 09:45
Hafragrautur
Jæja, okkur tókst að vakna tímanlega í morgun. Nægur tími til að gera hafragrautinn og systur gera sér núna grein fyrir að þær fá hann á hverjum einasta morgni héðan í frá. Ég fæ nú ýmislegt betra en hafragraut, en helsti kostur hans er að þá þarf maður ekkert að velta fyrir sér hvað annað eigi að vera í morgunmat. Systur eru nefnilega aldrei sammála. Margrét vill gjarnan fá jarðarberjajógúrt, á meðan Elísabet kemur engan veginn niður mjólkurafurð svo snemma dags, fyrir utan ostinn á hafrakexið. Sjálf hef ég þá kannski fengið mér slíkt kex með henni, eða þá jógúrt. En bara hreina jógúrt, alls ekki jarðarberja eins og Margrét borðar. Kata sækir í Ab-mjólk og múslí. Og svo þarf að hella upp á kaffi til að koma okkur Kötu í gang. Hver heilvita maður sér að þetta var alveg komið úr böndunum, þetta stefndi í að verða eins og morgunverðarhlaðborð á lúxushóteli. Nú munum við sameinast um blessaðan grautinn.
Við röltum með systrum í skólann og fengum okkur svo lítinn kaffi til viðbótar hérna heima áður en Kata hvarf í vinnuna. Ég ákvað að losa okkur loksins við drasl, sem hefur safnast upp, m.a. eftir tiltekir í geymslu, bílskúr og barnaherbergi. Ég hlóð bílinn og ók alsæl á Sorpu-stöð. Og heim aftur, enda ekki opnað þar fyrr en kl. 12.30. Þetta minnti mig á þá gullvægu reglu, að vera ekki að sperrast við mikinn tiltektar- og heimilisdugnað fyrir hádegi. Þá er best að sitja við tölvuna og koma einhverjum skrifum frá sér.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hafragrauturinn hefur haldið lífi í tam mér, á köldum morgnum bernsku minnar. Núna er það sígó og eitthvað sem blífur. Já ég skammast mín, en börn flutt að heiman og engin vittni til staðar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 8.1.2008 kl. 10:26
Þekki þetta með Sorpu, veit ekki hvað draslið hefur komið oft með heim aftur... og aldrei man maður þetta í næstu tiltektarlotu!
Annars er það með hafragrautinn eins og allt annað, hægt að borða hann í 2 - 3 mánuði og svo er eins og líkaminn segi bara STOPP, hingað og ekki lengra! Þá er það bara Seríosið þangað til manni langar aftur í hafragrautinn! Þannig er það á mínu heimili!
Sigþóra Guðmundsdóttir, 8.1.2008 kl. 10:36
Ég vona að hafragrauturinn verði fremur við lýði hér en morgunmaturinn þinn, Jenný!
Ég vona líka að ég muni hafa jafn mikið úthald í hafragrautinn og karl faðir minn, sem hefur gleypt þetta á morgnana áratugum saman. Það er kannski í genunum, þótt ég hafi nú aldrei nokkurn tímann fundið hjá mér minnstu grautarþrá hingað til.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 8.1.2008 kl. 11:52
Við tókum svona hafragrautsskorpu um tíma og þeim fannst notalegt að fá eitthvað heitt í kroppinn snemma dags. En það eru misjafnar óskirnar núna. Önnur vill kornflex, hin ristað, ég fæ mér mjólkurmat - skyr.is eða þá það sem er best er þessa morgna og það er að blanda saman létt AB og léttri jógúrt frá Húsavík og setja kornflex útí - það er nammi.
Ég hef aldrei verið hrifin af hafragraut en svo eru þeir sem eru eins of pabbi þinn og geta ekki hugsað sér annað.
"Grauturinn stendur svo með manni" er þeirra innlegg í umræðuna
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 8.1.2008 kl. 12:17
Smá viðbót - það var gott á sínum tíma að fá sér sígó og finna hvernig allur kroppurinn tók við eftir nóttina!!!! Og sterkt kaffi. Nú reyki ég ekki lengur og er svo til hætt að drekka kaffi.
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 8.1.2008 kl. 12:18
Kaffinu gæti ég hreinlega ekki sleppt. Ef ég fæ ekki kaffið mitt innan hálftíma frá því að ég vakna fer að laumast að mér koffínskorts-höfuðverkur hinn mesti. Sama gildir þá sjaldan að ég sef of lengi frameftir. Stelpurnar stríða mér á þessu, segja að ég sé eins og nátttröll þegar ég er ekki búin að fá kaffi
Þessi eina skál af heitum hafragraut með eplabitum út í dugði allan morguninn, eða "stóð með mér". Það er mjög gott -alveg óþolandi þegar garnirnar eru farnar að gaula upp úr kl. 10
Ragnhildur Sverrisdóttir, 8.1.2008 kl. 12:49
Hér á bæ voru bræður eiginlega bara fegnir að fara aftur í hafragrautinn eftir mjólkurmat og "karabían" á morgnanna í jólafríinu. Mér finnst grauturinn ágætur á morgnanna og hann dugar fram að hádegi. kaffið !! " mamma er algjör kaffigrís " fæ ég stundum að heyra og það er jafn sjálfsagt að bræður taki skólatöskurnar með sér í skólann og að mamma taki kaffi með sér í bílinn. ( ég er rúmar 20 mín að keyra í vinnunna og kæmist ekki á leiðarenda koffínlaus ) Takk fyrir skemmtilegar sögur af systrum.
Kv Birgitta sem er tveggja stráka mamma

Húsmóðir, 8.1.2008 kl. 21:22
Sæl Ragnhildur. Les alltaf færslurnar þínar og hef svo gaman af
Stelpurnar ykkar Kötu bara yndislega skemmtilegar og uppátækjasamar
. Bíð allaf spennt eftir næstu stafablöðum. Hafragrauturinn er bara góður
, en hér á heimili eru tvö stykki unglingar og einn ekta á fimmtugsaldri. Unglingarnir velja yfirleitt brauð með kæfu, en sá á fimmtugs reynir að komast upp með einn kaffibolla
Er ekki hleypt út úr dyrum fyrr en að hafa innbyrt að minnsta kosti "hálfa"sneið með kæfu 
. Spurning um að ég fari að taka hafragrautinn og hleypa engum út fyrr en hann hefur verið etinn
Blómið, 8.1.2008 kl. 21:22
Ég hef aldrei getað að borða hafragraut það sem ég var neydd til að borða hann þá var ég bara 9 ára gömul ég varð að setjast við borðið og ég mátti ekki standa upp fyrir en ég var búinn að borða hann ég var þá í sveit en ég kastaði upp hafragrautnum. Síðan hef ég aldrei geta borða hafragraut.
Kristín Katla Árnadóttir, 8.1.2008 kl. 23:34
Ég LOFA að neyða þær aldrei til að borða grautinn
Ragnhildur Sverrisdóttir, 8.1.2008 kl. 23:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.