11.1.2008 | 00:05
Klapplið
Systur fóru á enn eina fótboltaæfinguna. Núna voru 24 stelpur á æfingu og greinilegt að margar ætla að skella sér í boltann fyrir sumarið. Og Rakel þjálfari fer létt með að mæta með tvö lið á mótið í Fífunni næsta laugardag.
Dagurinn var viðburðaríkur hjá systrum. Tara bekkjarsystir þeirra og nágranni á afmæli í dag og af því tilefni tóku þær með sér sitt hvorn pokann af piparkökum, til að halda eins konar afmælisveislu fyrir Töru í frímínútunum. Á morgun býður Tara svo til veislu.
Eftir afmælisveisluna á morgun ætla systur að bruna með mömmu sinni í sjónvarpssal og fylgjast með æsispennandi viðureign Ísafjarðarbæjar og Akraness. Gott að hafa sitt eigið klapplið með
Eini gallinn við þessa viðburðaríku daga er að þær hafa ekkert æft á gítar undanfarið. Bara alls ekki neitt. Fyrsti gítartími ársins er á laugardag, strax á eftir fótboltamótinu og þær eru ólíklegar til að slá í gegn þar. Við bætum úr því síðar, vona ég.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég er með smá vandamál. Verð að halda með báðum liðum í kvöld. Þú og Ólína í einu og Gurrí í hinu. Dem, dem, ég þjáist af valkvíða.
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.1.2008 kl. 09:56
Það er alltaf jafn gaman að lesa um systur.
Enn núna ætla ég bara að pur, pur á þig fyrir kvöldið.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.1.2008 kl. 12:38
Hmm...?! Jenný, er ekki best að halda með því liðinu þar sem eru fleiri bloggvinkonur? Ég og Ólína vs. bara Gurrí??? Þetta segi ég auðvitað bara til að auðvelda þér valið.
Takk fyrir pur-ið, Milla
Ragnhildur Sverrisdóttir, 11.1.2008 kl. 13:32
Gangi þér vel!!!
Held með þínu liði;)
Dabbaa (bloggvinur) (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 16:22
Já mig minnti þetta....ohh..rosalega verður gaman að fylgjast með í kvöld. Ég sé fram á að geta stokkið upp fagnandi við öll rétt svör
Miklu betra en að mæta í líkamsrækt hehehe
Ragnheiður , 11.1.2008 kl. 18:05
Takk fyrir allt gott pepp
Ég mun gera mitt besta til að fólk fái sem mesta líkamsrækt heima.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 11.1.2008 kl. 18:18
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 11.1.2008 kl. 19:32
puff puff - en áfram Akranes þótt ég viti að það sé erfitt!
Edda Agnarsdóttir, 11.1.2008 kl. 19:39
Það var einstaklega gaman að hitta þig í kvöld og líka yndislegu stelpurnar þínar. Fer ekki ofan af því að ræðaraspurningin sem þið fenguð var viðbjóður, veit ekki um nokkurn sem hefði getað svarað henni og þekki ég þó ansi marga ... Takk fyrir góða keppni.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 12.1.2008 kl. 00:02
Takk sömuleiðis Gurrí
Þetta var mjög jafnt og þar af leiðandi skemmtilegt. Þið höfðuð einfaldlega betur. Ég vona að ykkur gangi vel í næstu lotu.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.1.2008 kl. 00:16
Þið stóðuð ykkur samt ótrúlega vel og virkilega gaman að fylgjast með ykkur
Ragnheiður , 12.1.2008 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.