12.1.2008 | 18:26
Kali hvað?
Eins og það hafi nú ekki verið nóg að uppgötva fullkomna vanþekkingu á "heimsfrægum" ræðurum og indverskum guðum á föstudagskvöldi, þá vaknaði familían klukkan 7 á laugardagsmorgni vegna fótboltamóts. Enginn tími til að sleikja sárin á þessum bæ.
Systur léku 7 leiki í Fífunni og náðu 3. sæti af þeim átta A-liðum sem tóku þátt. Rakel þjálfari er að gera ótrúlega góða hluti með þennan hóp. Á fyrsta mótinu þeirra í fyrra held ég að þær hafi spilað 6 leiki og tapað öllum. En núna fóru þær óskaplega stoltar heim með medalíurnar sínar og Elísabet náði þar að auki að skora tvö mörk.
Gítartíminn var strax eftir mótið og var svo skemmtilegur að systur mótmæltu hástöfum þegar honum var lokið. Þær höfðu hins vegar pantað brunch eftir öll átökin og röðuðu í sig á Vegamótum. Elísabet fékk uppáhaldið, beikon, egg, pönnukökur og allan pakkann, en Margrét tók heilsubrunchinn, með fersku grænmeti og ristuðu brauði.
Við erum búnar að slaka á hérna heima síðdegis og ekkert nema afslöppun framundan. Mikið eru svona helgar ljúfar
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 12.1.2008 kl. 22:20
Heil og sæl Ragnhildur!
Hef verið að fylgjast með stelpunum ykkar á blogginu þínu - og reyndar stundum í fótboltanum þegar guttarnir mínir hafa verið að spila í grendinni
Verð að segja að ég hefði viljað sjá þær í Víkingi - fyrst þið Hanna Katrín ákváðuð að festa kaup á húsi þar. En veit að það er mikill ÍR - ingur i Kötu - sem var í mikilli keppni við Víking í kvennahandboltanum á sínum tíma - þegar hún var upp á sitt besta! Reynar líka í Þorgerði Katrínu sem var frábær handboltakona eins og Kata - en látum það liggja á milli hluta.
Þá er betra að hafa stelpurnar í þriðja liði - var það ekki Þróttur?
Þetta með ræðarana - og guðina - þá varð ég fyrir ákveðnum vonbrigðum með ykkur Vstfjarðastelpurnar! En ábending þín um að hafa þekkt gutlið við bátsíðuna bætir það sko örugglega upp!
Mér fannst þið Ólína og guttinn frábær
Kveðja
Þinn gamli starfsfélagi úr Tónabæ!
Hallur
Hanna Katrín
Hallur Magnússon, 12.1.2008 kl. 22:55
Ég hef rosalega gaman af spurningakeppnum. Kominn á sextugsaldur hefur mér lærst að gott er að kunna skil á indversku guðunum. Spurningar um þá og norræna goðafræði dúkkar það oft upp í svona spurningjaleikum. Þú manst það næst.
Jens Guð, 13.1.2008 kl. 00:16
Afsakið ókurteisina, en hvert mannsbarn vissi þetta með Kali - og að floppa á Egyptalandi og Napóleon er ekki hægt að fyrirgefa, kom-on, hvað hefur portúgal með indland að gera? Súes, baby súes, stytting verslunarleiðarinnar frá Indlandi til Evrópu lá um Súes.
bjarni (IP-tala skráð) 13.1.2008 kl. 02:01
Ég verð nú bara að segja það mín kæra, það var bara svo gaman að heyra í ykkur
frábærilega vel gefin og máli farinn öll þrjú.
Þetta með að vinna: það geta ekki allir unnið.
Hlakka til að fylgjast með er Gettu betur byrjar í Sjónvarpinu, það er alveg frábært að hlusta á þessi ungmenni.
Æ þið hérna fyrir ofan mig, hvernig er hægt að verða fyrir vonbrigðum með svona
skemmtilegan hóp?
Svo talar engin um hvað Ragnhildur var flottur leikari í þættinum.
Kveðja Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.1.2008 kl. 09:48
Ég er sko jartanlegga sammála þér Guðrún Emelía. Vestfjarðahópurinn var frábær og eitt er víst. Húmorinn hennar Ragnhildar svíkur aldrei. Ég legg alltaf við hlustir þegar heyrist eitthvað frá henni.
Takk fyrir, öll þrjú úr Vestfjarðahópnum. Þið voruð frábær og höfðuð af miklu að deila en voruð óheppin með niðurröðun spuringa. Það geta ekki allir vitað allt.
Guðbjörn Jónsson, 13.1.2008 kl. 12:17
Þetta var frábær þáttur - það geta ekki allir unnið. Og þú staðfestir gruninn sem vaknaði í síðasta þætti - leikrænir hæfileikar þínir eru ótvíræðir
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 13.1.2008 kl. 15:41
Takk fyrir góðar kveðjur, öllsömul (jæja, eða flest alla vega
)
Hallur, gamli Tónabæjarleiðbeinandi, ég hef oft furðað mig á af hverju við vorum ekki æviráðin sem teymi til að leiðbeina unglingum um grýtta vegi. Undarlegt, svo ekki sé meira sagt.
Kata laumaðist með stelpurnar á fyrstu æfinguna hjá Val og þar hafa þær verið síðan. Reyndar byrjuðu þær að æfa í fyrra og þá voru margar vinkonur þeirra af gamla leikskólanum í Hlíðunum á Vals-æfingum -og eru enn. Það er auðvitað alveg rakið að færa þær í Víking og ég reikna með að það verði auðvelt þegar þær átta sig betur á að nýju skólafélagarnir hérna í Fossvogi eru flestir þar. Kötu hefur hins vegar tekist svo vel að innræta þeim Vals-mennskuna, að þær taka flutning í Víking ekki í mál enn sem komið er. Og ég sem sá þetta alveg í hillingum: Rauða litinn fyrir Kötu Valsara og svartar rendur mér, gamla KR-ingnum, til heiðurs! Víkingur alveg perfect til að sætta þessi sjónarmið.
Jájá, Jens og Bjarni, við hefðum auðvitað ekki átt að klikka svona hroðalega á guðunum og eftir á að hyggja var ýmislegt klaufalegt í meira lagi. Við nefndum að vísu ekki Napóleon í sömu andrá og Portúgal, en vorum alveg jafn vitlaus, svo það er engin afsökun. Ég get hins vegar ekki kvittað upp á að "hvert mannsbarn" hafi vitað þetta með Kali. Ég veit alla vega um þrjú mannsbörn sem voru alveg úti að aka
Mér finnst nær að fara að ábendingum Millu og ræða frekar í þaula hversu góður leikari ég er. Lítum á björtu hliðarnar!
Takk Guðbjörn og takk Kristín, fyrir þarfar ábendingar um að ekki geti allir vitað allt eða unnið. Það er viska sem ég mun ylja mér við á næstunni.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.1.2008 kl. 22:11
Ekki fremja harakiri hérna gott fólk yfir spurningakeppninni. Ragnhildur hefði unnið ef Akurnesingar hefðu ekki gert það. Er hægt að komast nær sigri án þess að vinna? Ha?
Þið voruð flott Ísfirðingar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 14.1.2008 kl. 16:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.