Best í heimi!

Systur fóru loks í gćr í langţráđa heimsókn á gamla leikskólann sinn og ţann besta í heimi, Sólhlíđ.

Linda Rauđudeildarstjóri tók á móti ţeim međ knúsi -og Gunna og Elsa létu reyndar sitt ekki eftir liggja. Stelpurnar stoppuđu í klukkutíma og á međan skrapp ég í burtu. Ţćr kvörtuđu hástöfum ţegar ég kom ađ sćkja ţćr, fannst ţetta allt of stuttur tími.

Ţótt Sólhlíđ sé besti leikskóli í heimi, ţá eru systur alsćlar í Fossvogsskóla núna. Ţćr töluđu meira ađ segja um ţađ á leiđinni á Sólhlíđ, ađ Fossvogsskóli vćri áreiđanlega besti skóli í heimi, rétt eins og Sólhlíđ vćri besti leikskólinn.

Í gćr skiluđu ţćr ţrautabókum í skólann, en í gamla daga hefđu slíkar bćkur líklega heitiđ reikningsbćkur. Ţrautirnar sem ţćr leystu ađ ţessu sinni voru af ýmsum toga: Einhver fór á fjall og fann 10 hrafntinnur, en tók 3 međ sér og hvađ skildi hann ţá margar eftir á fjalli? Og einhver átti 9 fótboltamyndir uppi á vegg, en vinur hans átti 3. Hve mikill munur var á myndaeigninni? Og svo var ein ţraut um fjölda dúkkukjóla og önnur um golfkúlur.

Systur taka ţrautirnar mjög hátíđlega, eins og lög gera ráđ fyrir. Ţó er töluverđur munur á hvernig ţćr leysa ţćr. Fyrsta ţrautin var um fótboltamyndirnar, 9 uppi á einum vegg og 3 á öđrum. Elísabet var afar fljót ađ rissa upp 9 ramma međ einhverju fremur ógreinilegu inni í og 3 til viđbótar sem voru alveg eins. Svo litađi hún snarlega blátt og grćnt inn í rammana. Ţetta var greinilega sama fótboltaliđiđ.

Margrét er miklu nákvćmari. Hún teiknađi litla fótboltahetju á hverja einustu mynd, ýmist síđhćrđa eđa dökkhćrđa, ţótt ekki spyrđi ég hana hvort ţetta vćru ýmist strákar eđa stelpur. Tvćr myndir skáru sig úr, ţćr voru mjög smáar og á ţeim voru einfaldlega örsmáir fótboltar. Enda fótboltamyndir Wink

Báđar sluppu ţćr vel međ hrafntinnumyndirnar, enda ekkert ađ gera nema teikna svarta mola.

Elísabet varđ aftur afskaplega effektíf ţegar kom ađ myndskreytingum ţrautarinnar um dúkkukjólana. Ţar átti ein stelpa 5 kjóla og önnur 4, ef ég man rétt. Kjólarnir fimm voru allir bleikir hjá Elísabetu og kjólarnir fjórir allir appelsínugulir. Einfalt og gott. Margrét dundađi sér hins vegar lengi, lengi viđ ađ lita kjólana, sem voru í öllum regnbogans litum, sumir röndóttir, ađrir doppóttir.

Golfkúlurnar voru fljótafgreiddar, ţurfti ekki einu sinni ađ lita ţćr.

Síđdegis í gćr fengu ţćr far međ Töru bekkjarsystur og nágranna í fimleikana, enda er Tara byrjuđ ađ ćfa međ ţeim. Marta María á númer 2 er líka í hópnum. Snilld ţegar foreldrar geta skipt međ sér akstri á ćfingar. Ég stefni á ađ fara međ allan hópinn á morgun.   


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Um bloggiđ

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Ţ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband