17.1.2008 | 16:28
V er vinur um vetur
V er stafur vikunnar.
Margrét reið á vaðið.
Fyrsta myndin var af fallegri, brúnni kventösku. Veski
Næsta mynd var af tveimur litlum og brosmildum stelpum sem leiddust. Vinur.
Ég brá mér aðeins frá og Margrét sagðist ætla að lita fyrstu tvær myndirnar á meðan ég stússaði í eldhúsinu. Hún þyrfti að hugsa sig aðeins um. Þegar ég kom til baka var hún búin að teikna tvær myndir til viðbótar, án þess að þurfa að bera það undir kóng eða prest.
Mynd númer þrjú var af fallegum, rauðum hlut, sem stafaði af gulum bjarma. Vasaljós.
Fjórða og síðasta myndin var af hendi. Hún hreyfðist greinilega, því Margrét kann öll trikkin í Andrés-blöðunum og teiknaði því litlar, bognar línur við höndina, sem sýndu að hún var á iði. Sá sem átti hana var greinilega að veifa.
Elísabet teiknaði fyrst skælbrosandi stelpu í bláum bol og fjólubláu pilsi. Vala.
Á næstu mynd eru tvær stelpur, sem takast í hendur. Vertu sæl!
Þriðja myndin var meira en lítið flókin. Fyrst teiknaði listamaðurinn glugga og út um hann sást tungl á himni. Þetta var barnaherbergi með kommóðu, rúmi og skrifborði. Við skrifborðið sat stelpa og var að vinna á tölvuna sína. Hún hafði það ósköp notalegt þótt hún væri að bauka þetta fram eftir nóttu og var með konfektkassa á borðinu hjá sér. Myndin heitir: Vaka með konfektkassa. (Við Kata eigum mynd sem heitir "Seta í landslagi" og þetta heiti er ekkert ósvipað )
Listamaðurinn var gjörsamlega andlaus eftir þessa mynd, en notaði margreynda aðferð systur sinnar, stóð upp frá borðinu og gekk út að glugga. Kom svo æðandi til baka, teiknaði hluta af húsi og svo óteljandi korn að falla af himnum. Vetur.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hehehe já andleysið entist sem betur fer ekki lengur en það.
Ragnheiður , 17.1.2008 kl. 16:43
Alltaf jafngaman að lesa um stafablöðin
Það eru bara alltof fá eftir
En ég sá að listamennirnir fá þá bara að njóta sín í stærðfræðidæmunum
Blómið, 17.1.2008 kl. 19:09
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 17.1.2008 kl. 19:39
Þetta er ótrúlega frumlegt - Vaka með konfektkassa
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 18.1.2008 kl. 07:04
Það er nú ekki dónalegt að vaka með konfektkassa, nammý nam.
alltaf jafn frábærar.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.1.2008 kl. 11:36
Ég er alveg sammála þessu með frumlegheitin, enda hefur Elísabet EKKI fyrirmynd innan veggja heimilisins að andvökunóttum með konfektkassa. Eða kannski smá, svona um jólin.... mig rámar eitthvað í Nóa konfekt og Ösku eftir Yrsu Sigurðar.... en var Elísabet ekki örugglega sofandi þá??
Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.1.2008 kl. 11:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.