Bert

Bjarki bestivinur kom í heimsókn í dag. Alveg merkilegt hvað þessi þrjú geta dundað sér vel og lengi. Svo fengu þau að horfa á eina mynd og systur þreyttust aldrei á að útskýra allt sem fyrir augu bar fyrir Bjarka - sem þreyttist ekki á að spyrja. Góð blanda.

Systur eru alveg með það á hreinu hvernig á að hafa Bjarka-heimsóknir, þótt það sé langt síðan hann kom síðast. Þegar ég sótti þau hljóp Margrét til mín og spurði: "Er til allt svo að þú getir búið til kanelsnúða? Bjarki fær alltaf kanelsnúða." Ég sagði henni að ég hefði einmitt komið við í búð á leiðinni, til að kaupa "hráefni". E-hemm, ja, eða frosna kanelsnúða, en hvað ætli blessuð börnin þekki muninn?

Ég sá að það var allt of langt síðan Bjarki kom síðast þegar hann spurði hvort hann mætti fara í heita pottinn og á trampólínið og í kofann í garðinum. Heiti potturinn og kofinn eru á kafi í snjó og trampólínið í vetrarham, svo þau voru bara innandyra að þessu sinni.

Systur voru svo ljónheppnar að fá að fara til Knúts frænda, Ölmu og Daníels í kvöld, á meðan við skruppum á myndlistarsýningu í Gerðarsafni. Svo teygðist nú úr dvölinni hjá þeim og þegar við sóttum þær voru þær dauðþreyttar, en afskaplega hamingjusamar. Eins og alltaf, þegar þær eru dauðþreyttar og hamingjusamar, streyma ástarjátningarnar frá þeim í stríðum straumum.

Elísabet þurfti sérstaklega að ræða hvað ég væri nú fínt máluð. En bætti samt við: "Sko, mér finnst þú alveg falleg svona og eins og þegar þú varst í sjónvarpinu um daginn, en mér finnst þú samt fallegri þegar þú ert bara heima með bert andlit."

Margrét var algjörlega sammála.

Ég mála mig alltaf afskaplega takmarkað. Núna get ég alveg sleppt því. Ég er fallegust með bert andlit LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Hehehehe já yndisleg.

Ég var að pirrast yfir hárinu á mér við tæplega tvítugan soninn um daginn. Nei nú hætti ég að standa í að lita hárið ! hvæsti ég. Það gerir ekkert til sagði strákur að bragði, þú ert alltaf eins og mamma mín...

Ragnheiður , 18.1.2008 kl. 23:50

2 Smámynd: Blómið

Þær eru auðvitað bara flottastar þessar stelpur ykkar Kötu 

Blómið, 19.1.2008 kl. 19:11

3 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Þessar snúllur, þær eru æði!

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 19.1.2008 kl. 20:00

4 identicon

Þetta er alveg frábært:  "fallegust með bert andlit".  Algjörir  gullmolar,  þessar ungu dömur.    Þetta er alveg  yndisleg athugasemd hjá dóttur þinni.   

Auður (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 23:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband