19.1.2008 | 21:03
Ljúft
Við vorum heldur rólegar í tíðinni í morgun. Stelpur sváfu aðeins fram eftir, enda vöktu þær lengi í gær. Undir hádegi æfðu þær sig á gítar og fóru svo í gítartíma. Við vorum búnar að nefna að kannski væri gaman að fara á snjóþotu í dag, en við Kata vorum ekkert sérstaklega spenntar á meðan skóf sem mest.
Um fjögurleytið var hins vegar stillt og fallegt og við fórum allar út. Tara nágranni og bekkjarsystir á númer 5 slóst í för með okkur, en Marta María á númer 2 var ekki heima. Þetta var alveg yndislegt, við fórum niður í dal og í sleðabrekku Kópavogsmegin í dalnum. Þar fórum við margar ferðir, en ég var nú eiginlega búin að fá mig fullsadda að draga snjóþotur og sleða upp brekkuna rúmri klukkustund síðar. Þá var líka farið að skyggja verulega og svört skýin bentu til að bráðum kæmi hríðarbylur. Við rétt sluppum inn um dyrnar hérna heima áður en hríðin skall á, en stelpunum þremur fannst ósköp notalegt að fá heitt súkkulaði og piparkökur eftir útiveruna. Við Kata vorum lukkulegar að ná handboltaleiknum, sem var nú stór plástur á sárið frá því í gær.
Systur fengu mömmu sína til að lesa fyrir sig eina Snuðru og Tuðru bók fyrir svefninn og plötuðu mig svo til að lesa eitt ævintýri. Margrét kom með ævintýrabókina sína, með nokkrum ævintýrum í. Ég stakk upp á að lesa um Gosa, af því að þær eru að fara í leikhúsið á morgun að sjá leikritið um spýtustrákinn og þá væri kannski gaman að vera búnar að rifja söguna upp. "Nei, ég vil alls ekki að þú lesir Gosa. Það kjaftar frá og ég er svo spennt að sjá leikritið," sagði Margrét.
Ég las um galdrakarlinn í Oz í staðinn.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sleðaferð og handbolti er náttúrlega bara toppurinn á laugardegi.
Edda Agnarsdóttir, 20.1.2008 kl. 02:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.