20.1.2008 | 23:55
Sunnudagur til sælu
Systur vöktu okkur með miklum látum upp úr hálf átta í morgun, komu hlaupandi yfir, hrópandi og kallandi. Við hrukkum upp með andfælum og héldum að eitthvað mikið hefði komið fyrir. Í ljós kom að Margrét hafði vaknað og ætlað að rölta yfir til okkar. Hún hélt að Elísabet væri þegar farin yfir, svo þegar hún sá hreyfingu í Elísabetar-rúmi brá henni hroðalega. Hún æpti upp yfir sig, sem varð til þess að Elísabetu brá ægilega og æpti líka, skelfingu lostin. Svo komu þessi krútt titrandi og skjálfandi upp í stóra rúm og tók töluverðan tíma að róa hjartslátt
Klukkan átta tosuðu þær mér fram að sjónvarpi, enda hafði ég lofað að "horfa" með þeim á barnatímann. Þeim finnst það svo miklu betra en að horfa aleinar. Ég tók með mér sængina og grjótsvaf, eins og venjulega, á meðan þær horfðu. Einu sinni vöktu þær mig alltaf: "Vaknaðu, vaknaðu, uppáhaldið þitt er núna!" ef t.d. Dóra landkönnuður kom. Þá átti ég að setjast upp og svara öllu sem Dóra spurði um, hoppa þegar hún sagði áhorfendum að hoppa og þar fram eftir götunum. Þetta fannst þeim ótrúlega gaman og oft mikið fjör þegar við kepptumst allar þrjár við að svara spurningum Dóru um hvað hefði nú verið skemmtilegast í þættinum í það skiptið. Núna eru krúttin hætt að vekja mig, leyfa mér bara að kúra áfram. Það hefur að vísu þann galla, að ef þær vilja tjá sig um eitthvað þá rölta þær inn til Kötu og vekja hana í sífellu. OK, reyndar ekki þær, bara Elísabet. Margrét rótar sér ekkert frá barnatímanum.
Þær voru svo heppnar að afi Torben og amma Magga buðu þeim í leikhús í dag, að sjá Gosa. Alma uppáhaldsfrænka og Daníel átrúnaðargoð fóru líka með. Svo fóru þær beint úr leikhúsinu í afmæliskaffi hjá stóru uppáhaldsfrændsystkinunum, Einari og Unu. Þær voru afskaplega sælar þegar þær komu loks heim eftir langan dag. Mömmur voru líka sælar að vera aleinar heima í nokkra tíma.
Við horfðum á restina af síðari hálfleik á EM saman, ég og stelpurnar. Óþarfi að segja nokkuð um þá hörmung. Systrum fannst frábært að sjá mömmu sína í sjónvarpinu, en hún var í sjónvarpssal að tjá sig um leikinn, gamla handboltakempan.
Um leið og Kata kom heim, ekki beinlínis með "bert" andlit eftir sjónvarpsförðunina, borðuðum við kvöldmat og svo fórum við allar saman í heita pottinn. Við hreinlega máttum til, enda veðrið einstaklega yndislegt. Og spáin fyrir næstu daga ömurleg.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já, það var fátt annað jákvætt! Mér leið á tímabili eins og ég væri áhorfandi í Slóvakíu degi fyrr.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 21.1.2008 kl. 09:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.