22.1.2008 | 09:48
Veðurvingull
Í morgun var sagt að óveðrið væri seinna á ferðinni en menn hefðu reiknað með, það væri mjög að aukast um sjöleytið og næði hámarki milli 7 og 9. Ég leitaði á netinu, en fann ekki stafkrók um að skólar í Reykjavík beindu þeim tilmælum til foreldra að halda börnum heima. "Uss, það er ekkert að marka," hugsaði ég, minnug þess að systur fóru í skólann í snælduvitlausu veðri fyrir jólin, af því að mæður vissu hreinlega ekki betur. Þá var ekkert ofsaveður í Logalandinu og viðvörun kom ekki fyrr en Kata var löngu farin með systur úr húsi.
Upp úr hálf átta hringdi ég í Fossvogsskóla. Þótt blíðan ein ríki oftast nær í hlíðum Fossvogar, þá ná vindhviður sér rækilega á strik neðst í dalnum. Þegar Kata fór með stelpurnar í skólann í óveðrinu mikla greip hún tvö börn á flugi við skólann! Það kom mér því ekkert á óvart þegar ég fékk þau svörl, að skólinn mæltist til þess að yngstu börnin yrðu heima í dag.
Systur eru enn á náttfötum og eru nokkuð ánægðar með þróun mála. Ég er hins vegar búin að uppgötva að afskaplega fá börn eru heima í dag. Enda hvergi stafkrók að finna á netmiðlum um fjúkandi skólabörn í Reykjavík. Ég hringdi aftur í skólann um níuleytið og þá kom í ljós að þar var skólastarf í fullum gangi. Ég var að velta fyrir mér að skutla stelpunum, en gaf það svo alveg upp á bátinn.
Ég er veðurhræddur vingull.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.