23.1.2008 | 15:32
Þín innsta þrá
Ekki kemur mér á óvart að lagið Þín innsta þrá hafi verið valið besta ísfirska dægurlagið.
Ef ég ætti að velja eitt uppáhaldslag í öllum heiminum væri það þetta lag. Í bernsku fannst mér það að vísu svo óskaplega sorglegt að ég fékk alltaf örlitla magapínu þegar ég heyrði það. Þessi sorgartilfinning ágerðist með árunum. Fyrir nokkrum árum var ég að aka vestur í bæ þegar það kom í útvarpinu og mér var hreinlega allri lokið, varð að stöðva bílinn þar til stytti upp
Ég syng þetta á kvöldin fyrir stelpurnar, í aðeins breyttri útgáfu: "Góða nótt mín litla ljúfa og ljósið bjarta, líf mitt hefur öðlast tilgang með þér..." og þær raula ljúflega með. Ég er alveg hætt að tárast.
Og reyndar hélt ég að lagið væri alveg hætt að koma út á mér tárunum, en þegar ég heyrði það í útvarpinu með BG og Ingibjörgu, í tilefni af þessu kjöri, þá átti ég bágt með mig, svei mér þá.
Fyrir nokkrum árum, þegar ég var í spurningaþættinum ...þetta helst þá var Ingibjörg Guðmundsdóttir einu sinni gestur í þættinum. Ég varð hreinlega eins og sjö ára stelpa sem hittir Birgittu Haukdal og Nylon-gengið í einu, vissi varla hvað ég átti af mér að gera. Þá áttaði ég mig á að konan sem söng Þína innstu þrá var mesta og stærsta poppstjarna sem ég hef dýrkað um ævina.
Nóg af tilfinningaþrungnum játningum í bili.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið er ég sammála þér, þetta lag hlustaði ég mikið á, m.a. vegna þess að Ingibjörg var í MA og það var ekki til meiri vegsemd í mínum huga en að vera í MA OG að syngja svona falleg lög. Það sem ég man svo vel eftir var hversu mikið var gert úr vestfirskum framburði Ingibjargar á "tilgang". Ég fékk disk Stebba og Eyfa sendan hingað til Ameríkunnar í fyrra og lagið Góða Ferð er eina lagið sem ég hlusta á en því miður hef ég ekki aðgang að "Þín innsta þrá" en þótt fjöldamörg ár séu síðan ég heyrði lagið síðast þá get ég samt framkallað alla tóna plötunnar og næstum því tárast. Takk fyrir yndisleg skrif um dásamlegu stelpurnar þínar og annað tilfallandi í Logalandinu. Kata
Katrín Frímannsdóttir (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 17:32
Ég fékk nú bara tár í augun við lesturinn......ég er sérlega mikil grenjuskjóða - varð það eftir að ég eignaðist stelpurnar og ekki batnar það með aldrinum....
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 23.1.2008 kl. 19:01
100% Sammála algjörlega .Dýrka þetta lag .
jensen (IP-tala skráð) 23.1.2008 kl. 19:58
Er svo sammála þér. Þetta er yndislegt lag. Held eftir þennan lestur að ég muni alltaf hugsa til þín þegar ég heyri það. Skyldi Ragnhildur vera að hlusta núna og skæla? mun ég hugsa.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 23.1.2008 kl. 20:26
Afsakið, meðan ég æli. Sagðirðu gubb? (Þetta segi ég bara til þess að breiða yfir samskonar tónlistarsmekk og viðlíka væmni).
(Gleymum ekki, Ég skal mála allan heiminn...)
hke (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 10:37
Ja hérna hér! Ég verð nú bara orðlaus. Verð þó að segja að mér hlýnar um hjartaræturnar við að lesa skrifin ykkar en ekki gerði ég mér grein fyrir því sjálf á sínum tíma að ég væri svona „fræg“! Okkur í hljómsveitinni fannst þetta bara svo gaman að vera saman og leika okkur í tónllist og víst var það okkur í hag að öðrum fannst það líka gaman. Takk fyrir mig.
Ingibjörg úr BG (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 11:23
Það mátti nú ekki seinna vera að þú uppgötvaðir stjörnustatus þinn, Ingibjörg
Svo rammt kvað að aðdáun minni á þér hérna í den að ég man ennþá þegar þú varst að raka einhvern túnblett við hús uppi í hlíð og mamma, sem vissi auðvitað af aðdáun minni, benti mér á að sú með hrífuna væri Ingibjörg söngkona. Mér fannst alveg með ólíkindum að svo fræg manneskja væri bara að raka blettinn við hús foreldra sinna!
Það er mitt að segja: Takk fyrir mig
Ragnhildur Sverrisdóttir, 24.1.2008 kl. 11:29
Ég hef áreiðanlega verið að heyja fyrir hestinn minn. Gerði það í nokkur sumur á túnbletti sem Elli Kærnested skósmiður hafði umráð yfir og gaf mér afnot af. En mér finnst sko líka mitt að segja mörg tökk!
Ingibjörg G.G. (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 11:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.