Innandyra

Systur brunuðu beint úr skóla í gær í fótboltann, þaðan heim og lásu skólabækurnar og svo fórum við í matarboð um kvöldið. Gestgjafarnir, Þórdís og Kristján, eiga örlitla og fallega tík af papillon-kyni, svo systur voru alsælar. Fyrir utan að njóta pizza-kvölds með Vigdísi og fá meira að segja að hlaupa út í Nóatún eftir íspinnum. "Um hánótt" eins og þær sögðu með andakt, enda klukkan orðin hálf níu.

Við Kata dældum lagasafni gestgjafanna yfir á iTouch. Það heppnaðist fullkomlega hjá mér, en ekki veit ég hvers vegna tölvan hennar Kötu neitar að kannast við að hafa hlaðið þessu öllu niður. Hún sýnir lista yfir öll lögin, en þar að baki er alls ekkert. Lögum það síðar.

Í morgun var allt á kafi í snjó, en ekki varð betur séð hér í Logalandinu en veðrið væri samt í fínu lagi. Meira segja við Fossvogsskóla var allt heldur rólegt, alla vega engin ástæða til að halda blessuðum börnunum heima. Brennt barn forðast eldinn og allt það. Ég ætlaði ekki að falla aftur í þá gryfju að halda þeim heima að óþörfu. Á þriðjudag vantaði tvö börn í Fossvogsskóla vegna veðurs: Systurnar.

Nú er komið í ljós að fólk kemst varla milli húsa í borginni. Kata komst í vinnuna, en bara af því að hún er á jeppa og getur farið upp á gangstétt til að komast framhjá smábílum sem eru spólandi þversum um allt. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að hreyfa LitlaSkít, sem kúrir undir skafli fyrir framan hús (hann var einu sinni kallaður skárra nafni, en nú hefur hann ekki verið þrifinn mánuðum saman).

Hef það notalegt innandyra þar til ég dúða mig og geng eftir systrum seinnipartinn Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ég hlustaði andaktug á alla frétta tíma í morgun og fylgdist vel með færð. Þegar ég kom ofan svona uppúr hálf átta þá sátu systur spenntar við gluggann og fylgdust með fjúkinu. Ekki hræða við skólann. Ég ákvað að vera ekkert að stressa mig og las blöðin. Í átta fréttum kom töfrafréttin að fræðsluyfirvöld mæltust til að foreldrar héldu börnum sínum heima. "YES" sögðu þær systur alsælar. Þær lentu nefnilega í því fyrr í vetur að koma í skólann og öll kennsla lá meira og minna niðri.

Nú kúra þær heima en ég er í vinnu......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 25.1.2008 kl. 11:02

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Við skiptumst greinilega á í þessu. Næst hringi ég í þig. Ef þínar stelpur eru heima fara mínar í skólann ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 25.1.2008 kl. 13:41

3 Smámynd: Jóhann Hannó Jóhannsson

Er ekki kominn tími til að skólayfirvöld nútímavæðist og komi þessum upplýsingum á netið þá sjaldan að veðrið er í þessum ham???

Jóhann Hannó Jóhannsson, 26.1.2008 kl. 08:14

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Vá það er harkan 6 hjá þér Vestfirðingurinn þinn, blessuð litlu börnin í skólann í þessu mannskaða veðri.  Hmmm sumir eru kaldir sem jökulá.

Hvernig gekk svo að próminera eftir þeim seinni partinn?

Knús og klemm

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.1.2008 kl. 08:47

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Börnin báru engan skaða af, enda var veðrið í Fossvoginum auðvitað alveg stórkostlegt, eins og oftast. Mér finnst hins vegar alveg fyrir neðan allar hellur að upplýsingum um óveður sé ekki komið á framfæri í fréttum fyrr en klukkan átta, en þá erum við alltaf lagðar af stað í skólann. Það væri nú ekki mikið vit í að snúa við í anddyri skólans, bara til að æða með þær aftur út í ofsann?

Ég hætti við að ganga eftir þeim seinni partinn, mokaði bara því mesta ofan af LitlaSkít og fór létt með að aka þennan smáspöl eftir vel hreinsuðum götum. Piece of cake, barasta! Jafnvel ískaldir Vestfirðingar þurfa ekkert að leika sér að því að vaða snjóinn upp í geirvörtur ef annað býðst.

Velkomin aftur heim, Jenný ;)

Ragnhildur Sverrisdóttir, 26.1.2008 kl. 15:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband