26.1.2008 | 15:35
Hamingjuhávaði
Endalaus snjókoma. Mikið er ég ánægð með þetta (nú myndu systur spyrja: "Er þetta kaldhæðni?" en mér er fúlasta alvara.)
Í gærkvöldi fór ég á Sólarkaffi Ísfirðingafélagsins. Magga systir var veislustjóri og Pétur maðurinn hennar kom með. Annars vorum við systurnar makalausar, ég, Bryndís og Ásthildur. Og skemmtum okkur stórvel. Ræðumaður kvöldsins vakti upp þvílíka nostalgíu að maður átti bágt með sig og svo var tónlistin ísfirskt.
Besta lagið, bæði á Ísafirði sem annars staðar í heiminum, Þín innsta þrá, var auðvitað hápunktur kvöldsins og þá risu allir úr sætum og sungu með. Ég líka. Og grét bara alls ekki neitt. Eini gallinn við þetta var að stúlkan sem flutti lagið ágætlega virtist sér ekki alveg meðvituð um hvað þetta var stórkostlegur heiður. Hún var alveg eðlileg á svipinn og stóð í báða fætur. Ég hefði kropið og sungið skjálfandi röddu í lotningu. Auðvitað hefði ég helst viljað heyra Ingibjörgu sjálfa syngja, en þá hefði mér áreiðanlega ekki tekist að halda aftur af tárunum.
Systur drógu mig framúr í morgun fyrir allar aldir og á meðan ég dró sængina mína á eftir þeim fram að sjónvarpi lofaði ég og prísaði Ásthildi systur í huganum, sem skutlaði mér heim á skikkanlegum tíma og í mjög skikkanlegu formi. Stundum rifja ég það upp að ég átti til að vera timbruð eftir alls konar skrall hérna í gamla daga. Fyrir systur. Mikið lifandis skelfing er það nú leiðinleg sóun á degi.
Ég svaf nú samt eins og grjóttimbruð fyrir framan Dóru landkönnuð, Sveppa og allt hitt gengið á meðan systur gláptu. Svo hristi ég af mér slenið (OK, OK, Kata vaknaði og ruslaði okkur öllum frá sjónvarpinu) og stundaði gítaræfingar með systrum. Þeim finnst alltaf skemmtilegast að fá að pönkast aðeins á lögunum. Fyrst syngja þær engilblítt og vanda sig mjög við gripin, en þegar einbeitingin fer að gefa sig er nauðsynlegt að arga og garga mjög pönkað og hamra á gítarana, þar til þær verða þreyttar á því og til í engilblíðar æfingar að nýju.
Þessi dagur stefnir í rólegheit, alla vega hjá mér og systrum. Kata þurfti að funda dálítið fyrir hádegi og aftur núna síðdegis og er einhvers staðar í útstáelsi núna. Hún þarf að skreppa til útlanda á morgun og þarf víst að koma ýmislegu frá sér áður. No rest for the wicked, segir einhvers staðar, en aldrei, aldrei myndi ég segja slíkt um hana. Bara alls ekki.
Fyrst ég er farin að röfla um allt og ekkert (sem gerist svo ákaflega sjaldan hjá mér) : Veit einhver hvar er hægt að kaupa hljóðkúta á börn? Systur og Marta María á nr. 2 eru háværasta kombínasjón sem ég hef á ævinni kynnst.
En ég ætti ekki að kvarta á meðan þetta eru eintóm hamingjuhróp.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú mátt gjarnan láta mig vita ef þú finnur "barnahljóðkútabúð" ! Það eru þá bara tappar í eyrun á okkur hinum ef svona græjur eru ekki til
Húsmóðir, 26.1.2008 kl. 18:45
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 26.1.2008 kl. 23:48
Æ, synd að hafa misst af þessu. Maður er svo algerlega dottinn úr sambandi við heimahagana að maður heyrir ekki einu sinni minnst á þessi partý. Maður verður að vera á tánum næst.
Jón Steinar Ragnarsson, 27.1.2008 kl. 01:38
Æ, Ragnhildur mín, njóttu bara hljóðanna - þú átt eftir að sakna þeirra seinna!
Ég hefði nú ekki komist ógrátandi í gegnum Þína innstu þrá, sama hver hefði sungið held ég bara, en þó einkum og sér í lagi ef Ingibjörg hefði sungið sjálf.
Bestu kveðjur.
Sonja B. Jónsdóttir (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 11:57
Sæl Ragnhildur, þetta var virkilega skemmtilegt kvöld og eins og ég lofaði þá er ég hér að kvitta fyrir innliti. Myndin af ykkur systrum er virkilega fín og vonast ég til að hún birtist í okkar ástkæra Morgunblaði á morgun. Kær kveðja,
Jón Svavarsson, 27.1.2008 kl. 12:26
Sæl aftur, ég sem hélt að við værum löngu orðinir bloggvinir??? En sendi þér beiðnina núna!
Jón Svavarsson, 27.1.2008 kl. 12:28
Góðan og gleðilegan sunnudag!
Ég veit að það er ekki til nein barnahljóðkútabúð, svo ég verð bara að fara að ráðum Sonju og njóta óhljóðanna
Jón Steinar, ég er nú aldeilis bit á þessu! Hefði ég vitað að þú værir svona tengslalaus hefði ég að sjálfsögðu boðið þér með á ballið. Þú hefðir auðvitað þekkt alla, ég þekki mest ættingja og einstaka fólk á svipuðu reki. Auðvitað vantaði þig og Maríu systur þína, Ásu Árna sá ég hvergi og veit reyndar ekki hvort ég hefði þekkt hana... Ég hefði nú ekki verið farin heim um miðnætti ef ég og Magga systir hefðum náð að rifja upp sumarið 1977 með Maju og Ásu
Jón, velkominn í vinahóp, það er auðvitað skandall að þú skulir ekki hafa verið þar fyrir. Við systur erum auðvitað hver annarri myndarlegri....*hóst*hóst*
Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.1.2008 kl. 13:50
Sólarkaffi hlýtur að vera skemmtilegt, ja eins og þú lýsir því líka. Ég man bara þegar ég var barn hvernig þetta hljómaði alltaf í auglýsingaupplestri útvarpsins - alltaf byrjað á sólarkaffi, sólarkaffi, .... það var svo mikið í tísku að tvítaka orðin eða umfjöllunarefni auglýsinga. Hélt nú lengi að þetta tengdist útlöndum/sólarlandaferðum.
Edda Agnarsdóttir, 27.1.2008 kl. 16:25
Þú ýtir kannski við mér á blogginu með fyrirvara næst. Þú myndir þekkja Ásu aftur, hún er nákvæmlega eins og í den.
Annars býr hún á Sigló og Mæja í Noregi. Vonandi hittist þið skvetturnar sem fyrst.
Jón Steinar Ragnarsson, 27.1.2008 kl. 20:32
Ragnhildur mín! Mikið skil ég vel þessa tilfinningasemi við hlustun á laginu "Þína innstu þrá" og samt er ég ekki ísfirðingur. Lagið er auðvitað alveg einstaklega fallegt og vekur hjá manni einhverja ljúfsára tilfinningu. Ingibjörg gerði þetta vel en ekki er það síðra í flutningi Guðrúnar Gunnars og Friðriks Ómars - dásamlegt. Spila þetta oft á repeat í bílnum, mjög hátt. Og varðandi börnin - þá finnst mér miklu mikilvægara að þau þekki gamla góða íslenska tónlist frekar en 50 cent, Britney, Spice comeback eða eitthvað álíka gól. Kv. Olla.
Olla (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 20:36
Ekki veit ég um hljóðkúta en ég óskaði þess oft að hægt væri að ýta á "paus" takkan - svona eins og á fjarstýringum fyrir sjónvarp.....
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 28.1.2008 kl. 07:07
Sólarkaffi er skemmtilegt og eins og sólarlandaferð að því leyti, að allir hafa veiðileyfi á að tala við alla. Af því að þeir eru Ísfirðingar, en í sólarlöndum af því að þeir eru Íslendingar.
Jón Steinar, þetta kemur ekki fyrir aftur!
Olla, alveg vissi ég að þú værir "gömul" sál. Ég tek hins vegar ekki í mál að hlusta á lagið með öðrum flytjanda en Ingibjörgu. Það væri nú eins og að hlusta á "Heyr mína bæn" með öðrum en Ellý.
Pásutakki væri fínn. Nema hvað þá myndi maður freistast til að skella á pásu af og til yfir daginn og þegar kæmi að háttatíma væri ennþá mikill spilatími eftir! Ekki gott.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.1.2008 kl. 14:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.