27.1.2008 | 19:38
Tónlistaruppeldi
Ætli systur eigi eftir að þakka mæðrum sínum hið dásamlega tónlistaruppeldi sem þær verða aðnjótandi?
Þær sitja hérna frammi og púsla. Og syngja hástöfum á meðan. Fyrir nokkrum mínútum sungu þær angurvært hið ísfirska ofurlag. Þegar það var búið voru þær fljótar að finna næsta uppáhaldslag: "Ég hef elskað þig frá okkar fyrstu kynnum...."
Ber okkur einhver skylda til að kippa börnunum inn í 21. öldina? Þetta er kannski too much??
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
GMG. Ef þú ert að spila fyrir þær, það sem ég held að þú sért að spila fyrir þær ... Hvað hét aftur hin uppáhaldssöngynjan þín með skrýtnu áherslurnar?
En, nei, nei. Þú skalt ekkert skipta þér af 21. öldinni. Hún er ekkert fyrir þig.
PS. Það hefur heldur ekkert gerst í bókmenntum eftir 1500.
hke (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 20:13
HEYRÐU MIG NÚ
Það er auðvitað sjálfsagt mál að kalla Ellý sönggyðju, en að tala um vitlausar áherslur!?!!?
Ég kenni börnunum bara klassík, á borð við: "Ég bíð og bíð og vona/að bráðum komi hann/Ég ber það svon'og svona/að eiga engan mann/Nú er ég þrjátí'ára/og æskan bráðum þver/Ég óttast það sé bara komin piparlykt af mér"
Ég var ákaflega stolt, eins og nærri má geta, þegar ég frétti að þær hefðu sungið þennan nýmóðins kvenréttindasöng á leikskólanum
Ragnhildur Sverrisdóttir, 27.1.2008 kl. 20:24
Ef bara fleiri foreldrar hefðu það fyrir börnunum sem þeim er holt og gott bæði að líkama og sál, söngur er þar með og öll klassísku löginn eins og Haukur Morthens, Ellý og Villi, Ingibjörg Þorbergs og fleiri mætti telja, jú og Baldur og Konni, já þá var öldin önnur og ekkert pönk eða þungarokk. Haldið áfram að syngja þessi gömlu góðu lög, það geri ég og nýt þess í botn.
Jón Svavarsson, 27.1.2008 kl. 20:36
Ellý, einmitt. En það var ekki hún. Það var önnur söngynja, með undarlegan framburð sem þú leikur eftir af stakri snilld...
hke (IP-tala skráð) 27.1.2008 kl. 21:29
Mér finnst þetta dúllulegt að hugsa um þessa tvo hruma, pússlandi og syngjandi lög frá miðri síðustu öld.
Hvernig væri að kynna þær fyrir bítlum og stóns og fá smá töffaraelement í börnin? Úje
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.1.2008 kl. 23:47
hke, þú ert að vísa til dönsku söngkonunnar, sem einhverjum fannst voða sniðugt að fá til að syngja inn á íslenska plötu. Ekki góð hugmynd, alls ekki góð. Framburðurinn var "undarlegur". Seinna var Shady á svipuðum nótum. "Undarleg".
Þetta er hárrétt athugað hjá þér, Jenný, auðvitað eigum við að spila bítla og stóns til að vega upp á móti allri íslensku klassíkinni. En það kæmi nú lítið töffaraelement inn á heimilið með því móti, ég er veikust fyrir lögum á borð við "As tears go by" og svoleiðis væmni. Sveimérþá, alveg þar til ég fór að skrifa um tónlistarsmekkinn lifði ég í þeirri trú að ég væri ögn skárri en ég er.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.1.2008 kl. 00:32
Ég er á því að ég sé með sama tónlistarsmekk og þú. Og heitir sú danska ekki Nora Broks...eitthvað??
Huldís Þórfinnsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 02:04
Skárri og skárri ekki. Ég gleðst altént yfir því að þið Jón Svavarsson hafi loks náð saman
hke (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 10:20
Jú Nora var það eitthvað og söng eitthvað á þessa leið - "T(Þ)að var líti(ð) hús, út við lý(y)gnan sæ t(þ)ar sem lak(g)legt fljót(ð) a(á)tti ljúfan draum" - hrein, tær og falleg íslenska
eða ekki! Þetta var slæm hugmynd.
Olla (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 14:18
Hehehe, já þetta er lagið sem hke elskar að heyra mig syngja
Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.1.2008 kl. 14:42
Þetta er allt að rifjast upp fyrir mér ... [ópið eftir Munch].
hke (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 14:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.