Hávaði og hávaðarok

Stundum sleppur maður fyrir horn. Ég var búin að steingleyma að systur áttu að koma með rassaþotur í skólann í morgun, svo hægt væri að fara í næstu brekku í dalnum. Hlákan bjargaði mér, því auðvitað var búið að slá þessu á frest vegna snjóleysis/harðfennis.

Sjúkk.

Búin að kaupa rassaþotur núna. Sem þýðir líklega að ekki snjóar meira?

Systur voru eins og englar í morgun, klæddu sig, greiddu og tannburstuðu og höfðu engin orð um það. Mamma þeirra er í Svíþjóð, svo þær lögðu sig mjög fram um að létta undir með mér. Þær voru örlítið svekktar að ég nennti ekk að labba í skólann, en jafnvel þótt þær hefðu verið eins og hugur manns var tíminn einfaldlega hlaupinn frá okkur.

Í gær skutluðum við Kötu út á völl, í hífandi roki. Systur höfðu afskaplega mörg orð um hraunið á leiðinni, hvort það væri alveg eins og hraunið í myndinni um Bróður minn Ljónshjarta og hvort þarna væru álfar og tröll. "Vá, þarna er flott bil !" hrópaði Margrét. Og var að tala um gil, sem er auðvitað ekkert annað en bil í jörðinni. Það er svo allt annað mál, að þessi litli skorningur gat nú hvorki talist gil né almennilegt bil.

Þegar Kata var komin í örugga höfn ókum við þrjár í bæinn og fórum að sjá Öskubusku í Austurbæ, en Kata sat á meðan í Leifsstöð og beið þess að lygndi. Hún var nýfarin í loftið þegar leikritinu lauk. Uss, þótt ég sé ánægð með snjó þá er ég ekkert spennt fyrir þessu roki. Og Kata var ekkert sérlega lukkuleg með þetta sunnudagssíðdegi í Leifsstöð, eins og gefur að skilja.

Systur eru mjög meðvitaðar um allt vannýtta plássið í stóra rúminu þegar mamma þeirra siglir til útlanda. Þær fengu að sofna í stóra rúminu. Ég bar þær svo yfir í sín rúm og báðar mótmæltu mjög. Þegar ég vaknaði í morgun voru báðar komnar upp í stóra rúmið aftur. Margrét mundi ekkert hvernig hún hafði komist þangað. Elísabet sagðist hafa vaknað "af því að það heyrðist svo hátt í fótunum hennar Margrétar þegar hún fór í stóra rúmið".


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband