Nostalgía

Systur komu svangar heim úr fimleikum og gleyptu í sig hrísgrjón og "krakkakjúkling", sem heitir auðvitað svo af því að hann er sætur á bragðið.

Þær busluðu svo saman í baði, í sátt og samlyndi. Eftir bað plataði Elísabet mig til að setja margar litlar fléttur í hárið á sér. Hún veit fátt fallegra en fléttuliði og þegar fjórtán litlar fléttur hafa þornað í henni í nótt ættu liðirnir að verða ægifagrir á morgun.

Þetta gekk nú ekki alveg þrautalaust. Ég er ekki kölluð klaufamamma að ástæðulausu, en Elísabet var harðákveðin og hvatti mig óspart áfram. Hún þarf hins vegar að laga hvatningarræðurnar. Fyrst sagði hún að þetta væri sko ekkert mál, mamma hennar gæti alveg sett í hana margar, margar fléttur og henni þætti það bara gaman. "Allt í lagi", tuldraði ég og byrjaði á fyrstu fléttu af fjórtán. Nei, hún var sko ekki alveg nógu góð. Rósa á leikskólanum hafði byrjað flétturnar miklu ofar og gert þær miklu fastari! Elísabet veit að það er mér um megn, svo hún stakk upp á að við myndum kannski halda tveimur fléttum eftir í fyrramálið, þegar við tækjum hinar úr, og festa þær saman í hjarta eins og Linda á leikskólanum gerði alltaf!

Mér finnst nú alveg nóg um þessar endalausu vísanir í leikskólann alltaf hreint. Þær kvöddu Lindu með pompi og pragt síðasta haust og Rósa var þá hætt nokkrum mánuðum fyrr. Þessar uppáhaldskonur eru samt ennþá hið eina sanna viðmið. "Mér fannst svo gott á leikskólanum þegar ég var búin að vera úti með húfu og þá nudduðu þær kannski hárið mitt," sagði Elísabet dreymin á svip á meðan ég barðist við enn eina fj...... fléttuna.

Leikskólar ættu að hafa aðlögunartíma í lok vistunar, rétt eins og í upphafi. Í upphafi eru börnin stund og stund, svo hálfan dag og loks heilan. Í lok vistunar ætti Linda að koma hingað af og til, nudda hársvörðinn á Elísabetu og setja í hana hjartahárgreiðslu, en Rósa gæti séð um fastar fléttur og lesið bók af og til.

Hvað segiði um þetta, ágætu konur? Bara til að létta af mér pressunni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég kann ekki að gera fastar (þrátt fyrir að vera móðir 3ja dætra).  Eigum við að skella okkur á fléttunámskeið.  Jenný Una verður að fá fagmannlega fléttuþjónustu hjá ömmunni?

Jenný Anna Baldursdóttir, 28.1.2008 kl. 20:51

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ég er ekki viss um að ég myndi ná þessu þótt ég færi á námskeið. Elísabet gæti kannski kennt þér þetta? Hún er með MJÖG nákvæmar leiðbeiningar og bendingar: "Sko, þú byrjar bara alveg efst uppi og svo tekurðu smám saman meira og svo heldurðu bara áfram niður en þú mátt ekki sleppa og svo...og svo...og svo..."

Blessuð uppáhöldin á leikskólanum reyndu meira að segja að kenna mér þetta og sýndu mér handtökin. Dugði ekki til.

Jenný Una á það sammerkt með þeim systrum að geta ekki orðið sætari. Fastar fléttur eru algjör óþarfi.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 28.1.2008 kl. 20:59

3 identicon

Komdu sæl Ragnhildur, þegar mín stelpa var í kringum tveggja ára (14 ára núna) datt ég niður á bók í einhverri bókabúðinni sem kenndi allt um fastar fléttur og allsskonar krúsindúllu greiðslur sem svona pæjur þurfa að vera með og auk þess fylgdi líka allavega litaðar perlur og bönd. Merkilegt nokk ég með mína 10 þumalfingur lærði þetta og meira að segja fléttaði ég vinkonurnar líka ef að þeirra mömmur kunnu ekki og þá var mín dama stolt af mömmu sinni

Kolbrún (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 22:29

4 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þetta líst mér vel á! Best ég gefi Kötu svona bók

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.1.2008 kl. 00:13

5 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Æfingin skapar meistarann, ég er móðir 5 dætra og kann að flétta fastar fléttur utanáliggjandi og venjulegar og náttúrulega bara svona venjulegar líka

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 29.1.2008 kl. 01:37

6 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Og kemurðu í húsvitjanir, Jóna Kolbrún?

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.1.2008 kl. 11:29

7 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ég er rosalega mikið klaufakind og fannst leiðinlegt að geta ekki fléttað hárfagrar dætur mínar. Ég fór inn á Amazon og leitaði að braids og pantaði mér síðan flotta bók.... Hér má finna margar bækur sem þú getur gefið konunni þinni   http://www.amazon.com/s/ref=nb_ss_gw/105-3503128-1259634?url=search-alias%3Daps&field-keywords=braids&x=15&y=19

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 29.1.2008 kl. 12:31

8 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Glæsilegt! Hvar væri ég án bloggvina??

Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.1.2008 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband