Systur

systuriMogga

Jón bloggvinur tók þessa mynd af okkur systrum á Sólarkaffinu sl. föstudag. Við erum auðvitað allar í ægifögrum litklæðum, eins og Íslendinga er háttur þegar þeir fara í jarðarfarir samkvæmi.

Flottastar, þótt ég segi sjálf frá LoL Margrét Kristjana, Ragnhildur, Hulda Bryndís og Ásthildur Lind. Bryndís er elst í systkinahópnum, svo kemur Kristján sem býr í útlöndum og var fjarri góðu gamni, Magga er næst, svo ég og Ásthildur yngst.

Gott að eiga systur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þið eruð sætar og nokkuð gleðilegar þrátt fyrir tilefnið.  Svona á þetta að vera.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.1.2008 kl. 14:31

2 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Flottar systur - þú/þið eruð ríkar, ríkar, ríkar........

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 29.1.2008 kl. 15:08

3 identicon

Fantaflottar systur! Fegin líka að lesa að það eru fleiri mæður en ég sem kunna ekki listina að fastaflétta og beygla hárið og ég veit ekki hvað og hvað! Verð líka að viðurkenna að söngvasafn systranna er talsvert ríkara en mitt, gætu verið með atriðið á þorrablótum og rolluböllum :)

hm (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 17:11

4 Smámynd: Ragnheiður

Flottar...áberandi að ekki hefur alltaf verið notuð sama uppskriftin við systraframleiðsluna.

Ragnheiður , 29.1.2008 kl. 17:28

5 identicon

Þið eruð glæsilegar enda frænkur mínar! kv gb

Gísli Baldvinsson (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 19:51

6 identicon

Heyrðu, kellingin. Hvar er stækkunarfídusinn á þessari fínu mynd? Maður þarf nú að skoða nálægt og leggja blessun sína yfir "sjoppið" og þannig.

hke (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 22:12

7 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Þetta er með vilja gert, hke. Við systur erum "fjarska"fallegar

Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.1.2008 kl. 00:25

8 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

jebb... það er gott að eiga systur.  Amk svona oftast.  Ég á slatta af þeim...

Rannveig Lena Gísladóttir, 30.1.2008 kl. 16:52

9 identicon

Fjarska hvað? Endemis vitleysa! Vondu fréttirnar eru hins vegar þær, að svo virðist sem Ásthildur sé með samskonar hálsmen og myrtu stúlkurnar í Forbrydelsen.

hke (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 20:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband