29.1.2008 | 20:13
E er stafur vikunnar
Ég var aldeilis bit þegar systur komu heim með staf vikunnar. Ég hefði getað svarið að við vorum löngu búnar að dekka E.
Elísabet var ekki í neitt sérstaklega góðu stuði þegar hún byrjaði að teikna. Líklega hefur hún notað alla orkuna í að lesa, því það gerði hún alveg einstaklega fljótt og vel í dag, enn betur en í gær.
Hún byrjaði stafablaðið sitt á fallegri, hvítklæddri veru með vængi. Engill.
Næst kom fremur kaótísk mynd, stelpa á hlaupum, fjórir boltar á lofti, handleggur að kasta bolta inn á myndina vinstra megin og fótleggur að hverfa úr mynd hægra megin. Elísabet sagði myndina sýna þegar stelpan fór á fótboltaæfingu og allir voru að kasta bolta út um allt. "Og hvernig tengist þetta bókstafnum E?" spurði ég. Hún leit á mig og skrifaði svo undir myndina: En skemmtilegt!
Þarna var hún alveg að gefast upp á þessu, öll orka á þrotum. Hún rissaði upp einhver konar hól, með hrukkum þvert yfir. Enni.
Síðasta myndin var brilljant lausn hjá stelpu, sem nennti þessu engan veginn lengur. Reyndar er þetta alls engin mynd. Elísabet skildi myndarammann eftir alauðan og skrifaði undir: Enginn.
Margrét lét ekki þreytu koma í veg fyrir ofurnákvæmar myndir sínar. Hún byrjaði á að teikna blað, sem greinilega var eins konar skriftaræfing barns. Á blaðið var skrifað, aftur og aftur, sama orðið. Við hliðina á blaðinu lá fallegur blýantur. Orðið á blaðinu? En.
Næst teiknaði Margrét fallega og vængjaða veru, eins og systir hennar. Engill.
Þessu næst dundaði Margrét sér lengi við að teikna hvern múrsteinn á fætur öðrum, þar til hún var komin með fallegan arinn. Svo teiknaði hún inn í arininn með gulu, rauðu og appelsínugulu. Eldur.
Síðasta myndin er af ofni, eldavél, nákvæmlega teiknaðri Kitchen Aid hrærivél og nokkrum áhöldum sem hanga á krókum uppi á vegg. Eldhús.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Enginn já, snilldarlausn,snilldarlausn
Ragnheiður , 29.1.2008 kl. 20:16
Þetta eru bara krúsur! Bið að heilsa þeimm ég heiti EDDA!
Edda Agnarsdóttir, 29.1.2008 kl. 20:36
Edda, já, það munaði nú minnstu að þú fengir teikningu af þér. Eða nöfnu þinni, Eddu systurdóttur minni. Elísabet var að velta því fyrir sér, en hefur áreiðanlega hætt við af því að það var of mikið fyrirtæki. Hún vildi hafa þetta einfalt. Eða bara alls ekkert
Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.1.2008 kl. 20:44
Hvernig hljómar miðvikudagskvöldið fyrir Touch 101 með hvítlauksgeira?
Leifur (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 22:01
Velkominn í hvítlaukinn miðvikudagskvöld ;)
Ragnhildur Sverrisdóttir, 29.1.2008 kl. 23:48
Þessi aðferð tröllríður öllum grunnskólum núna, hún hlýtur að vera kennd í KHÍ. Ég get alls ekki skilið hvers vegna þarf að eyða heilum vetri í að kenna börnunum stafi sem þau kunna
. Það versta er að allir grunnskólakennarar sem ég þekki (nema ein frænka sem er dugleg að gagnrýna kerfið og hætt að kenna) verja þessa aðferð með kjafti og klóm og segja að það sé "svo margt skemmtilegt gert í kringum þetta".
. Það er bara svo margt annað skemmtilegt OG GAGNLEGT sem hægt er að gera við tímann! Syni mínum hundleiddist alltaf í 1. bekk þegar verið var að "vinna með stafi" og það endaði með því að ég samdi um það við kennarann að hann fengi að fara fram í sófa og lesa á meðan.
Þuríður Björg Þorgrímsdóttir, 30.1.2008 kl. 10:32
Ég er nú reyndar á því að það sé margt skemmtilegt OG gagnlegt gert í kringum þetta, jafnvel þótt börnin þekki stafina. Systrum leiðist þetta alla vega ekki ennþá
Ragnhildur Sverrisdóttir, 30.1.2008 kl. 13:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.