Spenna

Systur voru spenntar í morgun.

Þær vita að mamma þeirra kemur heim í dag og meira að segja nógu snemma til að borða með okkur kvöldmat. Það stefndi í að hún kæmi ekki fyrr en undir miðnætti, svo þetta er mikið fagnaðarefni. Og þær vita líka að mamma þeirra kom við í grímubúningabúð í Stokkhólmi.

Svo voru þær líka spenntar af því að strax eftir skóla ætluðu þær að heimsækja Halldóru bekkjarsystur sína. Þeim fannst það töluvert mál, enda ætluðu þær að ganga með henni úr skólanum og alla leið í Vogaland. Það fannst þeim greinilega töluverður áfangi. Og höfðu nokkrar áhyggjur af að þær myndu ekki rata. Ég benti þeim á að Halldóra væri líkleg til að rata heim til sín og þá róuðust þær.

Ég er líka spennt. Loksins er ég búin að semja við "ungling" (unglingur: Einhver sem er undir þrítugu) til að kenna mér almennilega á iTouch-inn.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Þæe klikka ekki í krútthlutverkinu þessar stelpur.

Jenný Una er doldið sár út í ömmu sína í dag.  Sko amma hennar Söru Kamban (allir nefndir fullu nafni á leikskóla), kom og náði í hana og Jenný varð mjög fúl yfir að hennar amma kæmi ekki líka.  Svo gleymdi hún því og fór að tala fjálglega um að hún væri að fara í heimsókn til viðkomandi ömmu á morgun.  En þegar hún var að fara að sofa sagði hún við mömmu sína: Amma mín er ekki binkona mín, hún sóttaði mig ekki á leikskóla mín. Búhú.  Ég er í rusli.

Live can be hard

Jenný Anna Baldursdóttir, 30.1.2008 kl. 22:53

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Það er ég viss um að nafna þín fyrirgefur allt þegar hún er komin í dekrið til þín í dag  En vissulega sýnir hún nú töluverða hörku, ef hún telur gert á sinn hlut, blessunin.

Tilhlökkun barna er yndisleg. Og jólin rétt búin!

Ragnhildur Sverrisdóttir, 31.1.2008 kl. 10:12

3 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Ari minn - láns barnabarn - er algjörlega búin að fatta hvernig verst er að hegna manni "þú mátt ekki koma í afmælið mitt" er hann búin að læra. Hann verður þriggja ára í mars.......

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 31.1.2008 kl. 13:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband