31.1.2008 | 22:56
Fullorðins
Systur eru óðum að fullorðnast.
Í gær fóru þær heim eftir skóla með Halldóru bekkjarsystur og gengu alla leið í Vogaland. "Það var rosalega gaman," sögðu þær í kór og áttu þá bæði við göngutúrinn og velheppnaða heimsókn til Halldóru. Þar á heimili er lítill hvolpur, Mozart, sem vakti mikla lukku. Þær létu mig knúsa hann þegar ég sótti þær og biðu spenntar. Ég hnerraði ekki og það þótti þeim til marks um að bráðum gætu þær fengið hvolp. "Er ekki ofnæmið næstum því búið?" spurði Margrét vongóð.
Í dag fóru þær heim eftir skóla með Emmu, sem er í hinum 6 ára bekknum. Það var ekki minni upplifun, allt var frábært. Þær sýndu mér herbergi Emmu og tóku sérstaklega fram að þær þrjár væru búnar að taka til, það hefði sko verið miklu, miklu meira dót og þær hefðu varla getað gengið um.
Í kvöld fórum við til nágrannanna á númer 2 í heimatilbúnar lúxus-pizzur. Marta María bekkjarsystir þeirra var gestgjafi. Henni mun hafa þótt nóg um matarboð foreldranna og þegar stóra systir fékk að bjóða í mat var ljóst að röðin var komin að henni. Við Kata nutum þess bara að vera í fylgdarliðinu.
Allt þetta félagslíf hefur tekið toll af íþróttaiðkun. Þær fóru hvorki í fótbolta á þriðjudag né í dag. Eins gott að þær mæti á sunnudaginn.
Í morgun var foreldrafundur í skólanum. Ekkert nema gott af þeim systrum að segja. Kennarinn þeirra, hún Erla, á svo sannarlega stærsta þátt í því. Þær lýstu því báðar hvað þær eru glaðar í skólanum. Þær eru líka spenntar á hverjum morgni, ef það bíður þeirra ekki spennandi verkefni í skólanum þá er einhver leyniklúbburinn í frímínútum sem þarf að sinna.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.