2.2.2008 | 00:27
Ógeð
Margrét getur verið afskaplega klígjugjörn, eins og margoft hefur komið fram. Á leikskólanum var staffið búið að læra á þetta og hætt að hringja í okkur þegar blessað barnið kastaði upp. Tilefnið var líka oft svo augljóst, eins og þegar systir hennar stakk upp í sig hákarlsbita. Þá var Margréti allri lokið, einu sinni enn.
Þegar ég sótti systur í skólann í dag sagði Margrét mér að hún hefði kastað upp. Úti, þegar hún var að leika sér. Hún treysti sér alls ekki til að segja mér hvað hefði orsakað uppköstin að þessu sinni, en viðurkenndi að hún hefði séð dálítið ógeðslegt.
Hún sagði að það hefði farið dálítil æla í vettlingana og þeim hafði hún stungið kyrfilega í úlpuvasana, svo bæði úlpa og vettlingar fóru í þvott.
Í kvöld spurði Kata hana út í þetta, hvað hefði eiginlega gerst? Enn treysti Margrét sér ekki til að segja frá.
"Geturðu skrifað það fyrir mig?" spurði Kata.
Margrét fór niður, náði í blað og penna og skrifaði. Kom svo upp og rétti mömmu sinni samanbrotið blaðið.
Þar stóð: "Ég sá frosið bloðnasér." Undir setningunni var mynd af rauðri klessu.
Jamm, hver myndi ekki kasta upp við að sjá frosið blóð úr nefi??
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ó þessi elska er svo sannarlega systir mín í þjáningunni. Elsku dúllan.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.2.2008 kl. 00:32
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 2.2.2008 kl. 09:00
Hahaha, æ elskan litla. Bloðnasér! haha ... lovlí!
Hugarfluga, 2.2.2008 kl. 17:21
Þetta er auðvitað bara "vibbi"
Skil hana alveg. Enda er nú betra að skrifa þetta frá sér heldur en að þurfa að segja frá þessu "UPPHÁTT"
Bara yndislegar stelpurnar ykkar Kötu 

Blómið, 2.2.2008 kl. 21:28
þær eru magnaðar les oft þó að ég kvitti ekki alltaf
Einar Bragi Bragason., 3.2.2008 kl. 01:45
Dásamlegt!
Sonja B. Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 02:27
Gáfuð stúlka!
Edda Agnarsdóttir, 3.2.2008 kl. 12:54
'Eg les oft bloggið þitt um stelpurnar, þær minna mig svo á mínar á þessum aldri, (fæddar 1978) og uppátækin eru svo innileg og saklaus. Þið megið vera stoltar af þessum gullmolum ykkar.
Magga amma í Reykjavík
Margrét Rannveig Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 22:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.