3.2.2008 | 23:04
Módelstörf
Þegar ég var lítil var engin kona í heiminum fallegri en mamma mín. Alls engin.
Svona líta líklega öll börn á mömmu sína. Ég varð samt alveg bit þegar Elísabet horfði stíft á mig við morgunverðarborðið á laugardagsmorgni og spurði svo: "Af hverju hefur þú aldrei verið módel?"
Kjaftstopp, lengi, hún ég
En Elísabet vildi svör, svo ég neyddist til að útskýra fyrir henni að ég væri kannski ekki alveg týpan sem oftast væri leitað eftir til módelstarfa. Ég félli ekki inn í þetta dæmigerða módelform, sjáðu til.
Elísabet hristi bara hausinn yfir þessari vitleysu í mér: "Ég er viss um að þú hefðir alveg getað verið módel, en þú hefur kannski bara ekki passað alveg þegar einhver þurfti módel. En þú hefðir alveg getað passað næst."
Jamm, það er líklegt.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það eru svona stundir sem maður á að geyma sem fastast og mest - og draga fram þegar börnin komast á unglingsaldurinn
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 4.2.2008 kl. 07:09
Já, þegar hún harðneitar að ganga við hlið mér á unglingsárunum þá á ég eftir að minna hana á þetta módel-komment, til að tryggja að hún sökkvi endanlega niður úr jörðinni
Ragnhildur Sverrisdóttir, 4.2.2008 kl. 12:51
Mömmur er alltaf fallegastar!
Þóra (IP-tala skráð) 4.2.2008 kl. 16:55
Mitt móment sem ég sé fyrr mér á erfiðum stundum er þegar sú eldri var svona fjögurra - fimm mánaða gömul. Þá var Marsbúar tja tja tja sem vinsælast og þar sem við bjuggum á Fálkagötunni var langt og gott eldhús. Hún sat í Maxi Cósý stólnum sínum upp á eldhúsborði (úps) og hreinlega ærðist af fögnuði þegar þessi líka æðislega mamma tók písk úr skúffu og dansaði og söng fyrir barnið. Ég hef hreinlega aldrei séð slíka og þvílíka aðdáun og ást og gleði úr einu andliti. Þá strax ákvað ég að þetta væri mitt móment! Og trúðu mér - ég þarf oft að rifja það upp
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 5.2.2008 kl. 18:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.