Hlýtt

Alveg væri ég til í að skreppa núna til aðeins heitari slóða. Rölta um framandi stíga með konu og krúttmolum í þægilegu loftslagi, fara á veitingahús til að slaka á og í sundlaugina inn á milli. Í febrúar fer að síga á mann dálítil vetrarþreyta.

Mig langar til dæmis svona:

hkf_m2

Þetta var nú bara stutt borgarferð þegar systur voru á fjórða ári. Þeim hefur alltaf þótt gaman á veitingastöðum. Við verðum að lyfta okkur aðeins upp í komandi vetrarfríi, þótt það verði í kuldanum hérna heima.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Innlits-kvitt og kveðjur.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 5.2.2008 kl. 18:56

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hm...nýkomin heim frá London úr þessu vína rignarvorveðri.  Ég alveg til í að halda af stað aftur.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 20:05

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Hvaða borg er þetta?  Díteils Ragnhildur, díteils, annars get ég ekki lifað mig inn í stemmarann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 20:06

4 identicon

Ég var að koma úr skíðaferð til Vail Colorado. Aaaahhhhhh þau gerast ekki öllu betri fríin. Hvítt, kalt, sól og dásamlegt. Ekki borg og ekki hlýtt, ekki einu sinni miðað við kuldann hér í miðvestrinu. Er ekki kominn tími til að ísfirðingurinn kenni dætrum sínum á skíði?

Katrín Frímannsdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2008 kl. 20:17

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Borgin var sú ljúfa og nálæga Kaupmannahöfn, Jenný sparðatíningsfrú.

Ég þyrfti nú að byrja á að fara á skíðanámskeið áður en ég kenndi systrum. Ég var aldrei góð. Ef mér tókst að standa í lyftunni upp á Gullhól þá byrjaði niðurferðin svosem ágætlega, ég fór þetta í rólegu svigi. En svo missti ég alltaf stjórn á ferðinni og neðri hlutinn var brun beint af augum. Svo kunni ég bara að stoppa með því að snarbeygja til vinstri, sem þýddi að í hvert sinn sem ég neyddist til að stöðva, svo ég færi ekki beint inn í lyfturöðina, þá jós ég snjódrífunni yfir alla sem í röðinni voru.

Ekki gott. Óvinsæl í brekkunum fyrir vestan.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 5.2.2008 kl. 20:59

6 Smámynd: Hugarfluga

Ohhh Köben er så dejlig!! Dreymir reyndar um aðeins heitara loftslag akkúrat núna, en myndi nægja þó ekki væri nema 10 gráður í plús, sól og logn. Takk fyrir!

Hugarfluga, 5.2.2008 kl. 22:05

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Plógurinn er besti vinur skíðamannsins, alltaf fara í plóg, til að hafa stjórnina

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.2.2008 kl. 03:02

8 Smámynd: Jón Svavarsson

Hafið góðan og glaðan dag, mæðgur. kær kveðja,

Jón Svavarsson, 6.2.2008 kl. 07:56

9 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko það er fólk eins og ég sem bæti við stemminguna með því að fá fram seneríið og proppsið.  Nú veit ég að þið voruð í Köben að chilla og það segir svo miklu meir.  Hehe. 

Sparðatíningsdeildin.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.2.2008 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband