Norn og skrattastelpa

Systur voru glaðar í morgun og spenntar að fara í Neðstaland. Það er auðvitað enginn skóli í dag, en þær fá að vera allan daginn í Neðstalandi. Morguninn fer í vídeógláp og rólegheit, en eftir hádegismat stormar allt gengið í Víkingsheimilið. Þar verður öskudagsskemmtun milli eitt og þrjú.

Starfsfólk Neðstaland hélt, í bjartsýni sinni, að börnin myndu koma með búningana sína í poka og ekki fara í þá fyrr en eftir hádegi. Í bjartsýni okkar fylgdum við þessum fyrirmælum. En þegar við komum í Neðstaland í morgun mættu okkur herskarar sjóræningja, alls konar drýsildjöfla og einstaka prinsessa. Fyrir utan allar nornirnar. Systur voru því fljótar að snara sér í búningana sína.

Margrét er norn í ár, rétt eins og á hrekkjavökunní í haust. Kata keypti svartan nornabúning á hana í Svíþjóð á dögunum og svartan topphatt við og hún er alsæl. Fyrir átti hún kústinn til að fljúga á um loftin blá, en Kata bætti við ægilegum og vígalegum kuta, enda höfðu þær systur oft furðað sig á hvernig hægt væri að stinga einhvern í plati í bíómyndum og þessi hnífur var dæmi um svoleiðis gabb. Hann er með mjög mjúku blaði, þótt það sjáist ekki á honum í fljótu bragði.

Í Neðstalandi voru nágrannarnir og vinkonur systranna, Tara og Marta María. Og voru líka nornir. Tara í dökkbláum, fallegum kufli með nornahatt og Marta María í ljósbláum kufli og auðvitað með hatt í stíl. Nornir eru greinilega mjög "in" þetta árið.

Elísabet vildi ekki vera norn. Hún er "skrattastelpa", í rauðum kjól og með rautt hárskraut. Svo sveiflar hún djöfullegum þrífork og eins og það sé nú ekki nóg er hún líka vopnuð grautlinum kuta.

Þrátt fyrir vopnaburð segjast þær systur vera góðar.

Góða nornin og góða skrattastelpan verða málaðar í framan af unglingum í Víkinni eftir hádegi. Það finnst þeim flott.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

Í morgun, þegar ég hitti afabörnin mín, áður en þau fóru í skólan (er svo ljónheppinn, að þau búa í sama húsi og við gamla settið) brá mér alldeilis í brún.

Hún Íris Anna mín, var orðin eins og beint út úr hryllingsmynd frá Hollywood.  Svalalega eru litirnir orðnir flottir og efnin sem notuð eru í hár ,,leikenda".

Persónan var norn, í takt við Lönguföstu.

Strákarnir voru svo eitthvað annað, eldri svona unglingur frá 1960 í gerfi uppvaknings en sá yngri eitthver teiknimyndapersóna.

Svo var yngsta ,,heimasætan" á efri hæðinni, ekkert máluð, er með slæmsku á kinn og ´´vi vildi amman ekkert vera að stússast við leikmförðun, enda snúllan ekki nema nýorðin tveggja og á leið í Leikskóla.

Njóttu daganna

Miðbæjaríhaldið

Bjarni Kjartansson, 6.2.2008 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband