7.2.2008 | 23:27
Sumar- hvað?!
Vetrarfríið byrjaði ágætlega í dag. Við börðumst út í jeppa og skutluðum Kötu í vinnuna. Svo fórum við þrjár á Bakarameistarann í Austurveri og systur tróðu í sig rúnnstykkjum og kakói og fengu einhverja bölvaða óhollustu í eftirmat. Alsælar.
Frá Bakarameistaranum héldum við til Afa Ís og Ömmu Deddu á Einimel. Þegar við renndum í hlað var pabbi að bakka bílnum sínum upp frá bílskúrnum og við feðginin tókum skurk í snjómokstri. Pabbi einbeitti sér að því að kanna hvort þetta væri ekki örugglega bíllinn hans, þarna undir snjófarginu, en ég ákvað að moka frá húsinu. Við vorum svo ljónheppin að um leið bar að mann á lítilli ýtu, sem var að hreinsa gangstéttar. Hann gerði sér lítið fyrir og skóf rækilega frá innkeyrslunni. Sparaði mér þar með mikinn mokstur (og áreiðanlega töluverðar harðsperrur). Á meðan á þessu stóð voru systur í góðu yfirlæti hjá ömmu sinni, sem hélt að þær væru aðframkomnar af hungri, enda báru þær sig aumlega og þáðu bæði kleinur og súkkulaðiköku. Og tvö mjólkurglös á mann!
Frá Einimelnum héldum við í Hagkaup, að kaupa inn fyrir ætlaða sumarbústaðarferð. Alls konar gúmmelaði, sem við verðum að borða hér heima um helgina, enda hættum við öllum bústaðarpælingum eftir að hafa skoðað veðurspána.
Þegar við komum hingað heim um hádegisbil var ljóst að það nægði ekki að moka frá húsi vestur í bæ, við urðum að taka til hendinni hérna líka. Systur voru ótrúlega duglegar, hömuðust með skóflur, plóg og kúst. Þær voru orðnar lúnar þegar ég skutlaði þeim í ráðuneytið til Kötu, þar sem þær fengu að dunda sér á meðan ég reyndi að koma einhverju í verk.
Svo var það fótboltaæfing síðdegis. Eftir æfinguna mátuðu þær nýja æfingagalla. Báðar smellpassa þær í stærð 8, en Elísabet vill samt fá stærð 10. Hún er hærri og þreknari en Margrét. Þessar vikurnar alla vega, en annars hafa þær nú gjarnan skipst á í þeirri deildinni. Margrét, sem var 6 merkur við fæðingu, var veik í tvo mánuði á eftir og enn grindhoruð og guggin þegar við loks fengum hana heim. Elísabet var þá pattaraleg, enda fæddist hún 8 merkur og amaði aldrei neitt að henni. Það var ekki að sjá að þessar stelpur hefðu fæðst á sama degi! Fjórum mánuðum síðar var Margrét hins vegar búin að ná systur sinni og um tíma var hún stærri og þyngri. Svo komu árin þar sem þær voru oftast alveg jafn háar og munaði í mesta lagi hálfu kílói á þeim, stundum var Elísabet þyngri, stundum Margrét. Þær eru báðar hraustar og löngu, löngu búnar að hrista af sér allt sem heitir fyrirbura-eitthvað. Læknarnir í henni Ameríku sögðu okkur að við gætum reiknað með að þær yrðu minni og grennri en jafnaldrar fram að 7 eða 8 ára aldri, en þær systur eru báðar yfir meðallagi á hæð, þótt vissulega séu þær grannar. En ekki horaðar.
Að þessum útúrdúr slepptum: Við erum sem sagt hættar við sumarbústaðinn og systur fá að fara aftur með mömmu sinni í vinnuna á morgun. Þær eru eiginlega ánægðar með þetta, því þær voru svekktar að missa af sjö ára afmæli hjá Emmu vinkonu sinni á morgun.
Sjálfar eru þær farnar að velta mjög fyrir sér eigin afmæli, þótt það sé ekki fyrr en 19. mars. Þær ætla að bjóða stelpunum í bekknum. Stundum vilja þær líka bjóða strákunum, en annars hrista þær bara hausinn yfir þessum uppátektarsömu guttum. "Það er eins gott að Bjarki er ekki í okkar bekk, annars væri hann áreiðanlega líka orðinn eins og hinir strákarnir," sagði Margrét um daginn, feginn að gamli félaginn er í hinum bekknum og enn með fullum sönsum. Ég á nú afskaplega erfitt með að sjá fyrir mér 6 ára strákakrúttin í þeirra bekk sem "slæman félagsskap!"
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessar fallegu og góðu stúlkur eiga sama afmælisdag og hann pabbi minn - 19. mars. Hann fæddis á Siglufirði árið 1917 og dó 3. febrúar 1999.
Svo eru þær fiskar eins og ég - ég er 8. mars á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 8.2.2008 kl. 10:43
Kristján afi minn fæddist líka 19. mars
Góður dagur, greinilega,
Ragnhildur Sverrisdóttir, 8.2.2008 kl. 11:37
Það væri synd að segja að dagarnir séu ekki þéttskipaðir hjá ykkur ...
Gísli Hjálmar , 8.2.2008 kl. 11:46
Og Margrét langalangamma systra fæddist líka þann dag, þ.e. 19. mars ;=
Jamm, dagarnir eru þéttskipaðir, alltaf nóg að gera.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 8.2.2008 kl. 11:49
Sæl Ragnheiður.
Mér datt nú í hug það sem sonur minn sagði við mig fyrir mörgum árum þegar hann var á svipuðum aldri "Mamma rosalega ertu heppin að eiga bara stráka. Stelpur eru svo leiðinlegar".
Segið svo að börnin hafi ekki skoðun á hinu kyninu!
Þóra Guðnadóttir (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 13:25
Fyrirgefðu Ragnhildur.
Skrifaði óvart nafnið á samstarfskonu minni sem ég var að tala við meðan ég skrifaði fyrri póstinn.
þóra aftur (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 13:27
Já það eru greinilega happadagar í þinni fjölskyldu

Dabbaa (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 17:26
Sæl!
Mig langaði bara aðeins að segja hæ..
Ég er fædd 19.mars 1988 og svo á ég litlar tvíburastelpur fæddar 5. september síðastliðinn! Mér fannst þetta bara of skemmtileg tilviljun til þess að sleppa því að segja nokkuð :)
Kv. Birgitta
Birgitta Ásbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 9.2.2008 kl. 23:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.