9.2.2008 | 16:24
Leynifélagið Hagkaup
Mér stóð ekki á sama um kvöldmatarleytið í gær, þegar Kata fór í Smáralindina að sækja systur og vinkonur í afmæli. Veðrið var auðvitað orðið alveg stjörnuvitlaust. Hún var ekki komin til baka þegar lögreglan tilkynnti að fólk ætti bara alls ekki að vera á ferðinni í þessu óveðri. En heim komust þær allar, heilu og höldnu.
Fyrr um daginn fór ég með stelpur í Hagkaup og þeim til mikillar gleði fundust húfurnar þeirra, sem mér hafði einhvern veginn tekist að glata degi fyrr. Ég veit ekki hvernig það gerðist, ég tók húfurnar af þeim, henti ofan í körfuna, keypti inn, borgaði vörurnar, fór með pokana út í bíl í kerrunni, uppgötvaði þá að húfurnar vantaði, leitaði í öllum innkaupapokunum sem og kerrunni, fór inn aftur, leitaði í öllum öðrum kerrum þar inni, leitaði í kerrustæðum um allt bílastæði, spurði í sjoppunni, spurði í upplýsingum...
Systur voru afskaplega spenntar yfir þessu, lýstu með vasaljósum ofan í allar kerrur sem þær sáu og Elísabet fullyrti að hún hefði séð afskaplega grunsamlegan mann, sem hefði gert sig breiðan, eins og til að fela að hann væri með tvær húfur innan á sér. Mér fannst nú ekkert athugavert við þennan miðaldra mann.
Margrét tilkynnti að málið yrði rannsakað betur, hún ætlaði að stofna "Leynifélagið Hagkaup" til að leysa málið. Úff, ég má nú ekki hugsa til enda viðbrögðin sums staðar í samfélaginu ef fréttist af slíkum félagsskap. "Leynifélagið Hagkaup?" Ætli efnahagsbrotadeildin fengi ekki aukafjárveitingu til að rannsaka ósómann?
Guðmæðurnar Addý og Bára voru komnar hingað í hús í gærkvöldi áður en tilkynning barst um að allir ættu að halda sig heima, svo þær hættu ekki við að koma í kvöldmat. Hreindýrapottrétturinn var alveg tilvalinn á svona nöpru kvöldi. Þær sátu svo hjá okkur fram eftir kvöldi, en á tímabili vorum við farnar að velta fyrir okkur hvort þær þyrftu ekki að gista. Þær komust klakklaust heim undir miðnættið.
Er það tilfellið að það eigi aftur að gera snælduvitlaust veður í kvöld? Er þetta eitthvað tengt matarboðunum okkar? Við ætlum að fá góða vini í heimsókn í kvöld og þeir eiga nú ekki allir heima í næsta húsi - bara sumir. Vonum það besta, annars eru hér sófar og aukasængur
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ísland er land þitt þú ávalt það ...
Landið okkar getur verið virkilega kósý þó sumir kjósi að kalla það vont veður
Gísli Hjálmar , 9.2.2008 kl. 20:33
Leynifélagið Hagkaup. Ég vildi að ég hefði fengið þessa hugmynd þegar ég var lítill drengur. Njósnaferðir um grænmetisdeildina, heimskautaferðir um mjólkurkælinn og félagsfundir í Nammilandi. Allt á meðan mamma verslar. Þetta hefði getað komið mér í alveg stórkostlega skemmtileg vandræði.
Mér finnst veðrið æðislegt. Einhvernvegin kallar það á Íslendinginn í mér, víkinginn, kotbóndann, sjómanninn. Mér finnst að veðurstofan ætti árlega að hafa kolbrjálað veður allan þorrann.
Bjarni Magnússon, 10.2.2008 kl. 00:23
Það er rosalega notalegt að framlengja matarboð með því að bjóða gestum að gista. Svo er bara haldið áfram þar sem frá var horfið kvöldinu áður við morgunverðarborðið
Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 10.2.2008 kl. 14:24
Okkur var reyndar ekki boðið að gista, en maturinn gerði stormandi lukku.....
Urður (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 16:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.