12.2.2008 | 11:59
Nærbrók og nívur
Enn á ný koma systur heim með stafablað, þótt þær séu báðar á góðri leið með að verða fluglæsar -og Margrét reyndar nær komin í mark. Núna var það N.
Margrét dreif sig í að gera sitt blað upp á eigin spýtur. Svei mér þá, ég bara man ekki hver fyrsta myndin hennar var og nú er hún búin að skila blaðinu! Klaufalegt hjá mér, enda klaufamamman. Og ég steingleymdi að spyrja hana sjálfa í morgun, en Margrét man hverja einustu mynd sem hún hefur teiknað.
Mynd númer tvö hjá Margréti var af fallegri bleikri flík, skreyttri hjörtum. Nærbrók.
Næsta mynd var afar einföld. Örsmár hlutur á miðri mynd og tvinni hlykkjaðist frá honum. Nál.
Fjórða myndin var af vegg, út úr honum stóð nagli og við naglann var hamar. Negla.
Elísabet stóð sig líka vel. Hún teiknaði flókna mynd, sem sýndi konu að spóka sig í verslun. Í versluninni stóðu gínur og konan stúderaði það sem var í boði. Hana langaði augljóslega í eina flíkina, eða eins og stóð undir myndinni: Nýjustu úlpuna.
Næsta mynd var af stelpu á kústskafti sem sveif um loftin blá. Nanna norn.
Þriðja myndin var af plastpoka, fullum af alls konar girnilegum molum. Nammi.
Síðasta myndin var óborganleg. Elísabet teiknaði myndarlegt, brúnt skaft og út úr því gekk gráleitt, beitt og tennt blað. Nívur.
Úps!
Hún áttaði sig á að stafsetningin var ekki alveg rétt, þótt hún beri orðið svona fram. Hún lagaði það og núna stendur: Hnífur. Það skiptir ekki öllu þótt orðið byrji ekki á N-i, það er N í því
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 12.2.2008 kl. 13:20
Þau eru æðisleg! Litli gutti kom til mín þegar hann var að byrja í stærðfræði og sagði "garún, spurðu mig hvað 2 plús 2 eru". Ég gerði það og hann svaraði að vörmu 4. Kvikindið sem ég er þá spurði ég hann aftur "En Gunnar, hvað er 2 plús 3"?. Hann varð sár á svipinn og horfði á mig lengi áður en hann svaraði og gekk í burtu "allaveganna ekki fjórir". Svona eru þau þessar elskur..
Garún, 12.2.2008 kl. 13:42
Þú nastý - hann klár
Ragnhildur Sverrisdóttir, 12.2.2008 kl. 14:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.