Harðindi

Fyrir svefninn voru systur að æfa sig í hugarreikningi.

5 plús 5 eru 10.

2 plús 3 eru 5.

Og svona héldu þær áfram lengi.

Ég stoppaði þær og sagði þeim að svona hefði þetta ekki verið þegar ég var lítil. Þá hefði sko ekki verið nóg af öllu. 5 plús 5 hefði í mesta lagi verið 7.

Þær snarþögnuðu og horfðu á mig, afskaplega efins, svo ekki sé meira sagt. Ég kallaði mömmu þeirra til vitnis, en hún kvaðst ekki viss um að það hefðu einu sinni verið til skólar þegar ég var lítil.

Ég þrætti auðvitað, en ítrekaði svo að "í gamla daga" hefði skortur verið viðvarandi. 5 plús 5 voru bara 7 og 2 plús 3 aldrei meira en 4.

Þeim systrum var alveg nóg boðið. "Það er ekkert hægt að breyta 5 plús 5!" sagði Margrét, yfir sig hneyksluð.

"Þetta er reikningur, en ekki peningar!" sagði Elísabet.

Umræða um skort úr sögunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hugarfluga

Hahahahaha!!! Snilld! 

Hugarfluga, 12.2.2008 kl. 21:45

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Veinandi brilljans.

Jenný Anna Baldursdóttir, 13.2.2008 kl. 00:10

3 identicon

Takk fyrir þessa skemmtilegu sögu. Hún kom mér í gott skap.

Davíð Þór (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 09:25

4 Smámynd: Einar Þór Strand

Svona umræður um "gamla daga" geta endað skringilega eins og amma sem ég veit um fékka að reyna.

Eftir að hún hafði verið að segja frá einhverju sem var í "gamla daga" spurði ömmubarnið "Amma þurftir þú þá að passa þig á risaeðlunum þegar þú fórst í skólan?"

Einar Þór Strand, 13.2.2008 kl. 10:16

5 identicon

hahahahahahah !!!! Sætt!!!

Dabba vinur :) (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 10:36

6 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Þetta er fyndin saga - aumingjans dæturnar að eiga svona kvikyndislega mömmu - ekki bara eina heldur tvær.....

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 13.2.2008 kl. 11:09

7 identicon

Hehehe.. þær láta ekki slá sig út af laginu með svona vitleysisgangi enda snjallar stúlkur.

Olla (IP-tala skráð) 13.2.2008 kl. 11:25

8 Smámynd: Guðríður Hrefna Haraldsdóttir

Flott hjá þeim að fatta kvikindisskapinn í mömmunum. Hehhehehe! Ég lagði mjög þung dæmi fyrir strákinn minn áður en hann fór í skóla. T.d. Hvað eru tvær milljónir plús þrjár milljónir? Honum tókst vel að svara svona hrikalega stórum dæmum og sjálfstraustið var svo mikið þegar hann byrjaði í skóla að hann var lengi vel hæstur í bekknum í stærðfræði.

Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 13.2.2008 kl. 12:33

9 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Frábært trikk, Akranessspekingur! Ég get kannski toppað þetta með milljörðum

Ragnhildur Sverrisdóttir, 13.2.2008 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband