Heima

Elísabet er heima hjá mér í dag.

Hún var eitthvað tæp í maganum í morgun, kúgaðist dálítið og var kalt, en svo varð nú ekkert meira úr því. Hún sofnaði aftur, eftir að systir hennar fór í skólann, svaf hátt í tvo tíma og vaknaði  glorhungruð. Ekkert að maganum í henni, en vissulega er hún ekki alveg eins og hún á að sér að vera. Bara örlítið slöpp. En auðvitað dekraði ég hana með því að baka klatta og hún var alsæl.

Núna liggur hún fyrir framan sjónvarpið og horfir á einhverja mynd. Það fer ósköp lítið fyrir henni og ég get setið við tölvuna eins og mig lystir. Hún valdi mynd sem systir hennar nennir aldrei að horfa á. Gott að nýta fjarveru hennar svona.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ frænkur,og takk kærlega fyrir pakkann frá ykkur ég var ekkert smá glaður að fá hann þegar ég kom heim af spítalanum og Elisabet vonandi ertu orðin eldhress knús frá frænda Sverri

sverrir (IP-tala skráð) 14.2.2008 kl. 22:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband