14.2.2008 | 21:08
Lucky
Systur fá að gista hjá Addý og Báru á morgun. Gistinætur þar eru alltaf tilhlökkunarefni, hvort sem það er heima hjá þeim á höfuðborgarsvæðinu eða uppi í sumarbústað.
Að þessu sinni krefst næturgistingin óvenju mikils undirbúnings. Þær áttuðu sig á því um daginn að Lucky, hundur A og B og mikill vinur þeirra systra, hefði ekki fengið sérstakan jólapakka frá þeim um síðustu jól og hefði þar að auki áreiðanlega margoft átt afmæli án þess að þær gæfu gjafir. Þegar Addy og Bára voru hjá okkur í síðustu viku voru þær því yfirheyrðar í þaula um hvað Lucky þætti best að fá og hvernig hann vildi helst að pakkarnir væru.
Þetta var útkoman: Eftir skóla í dag brunaði ég með systur í Rúmfatalagerinn, þar sem þær völdu eiturgrænan, en óhemju mjúkan, púða fyrir Lucky að knúsa. Hann er nefnilega kominn til ára sinna, hann Lucky, og vill fremur góðan púða en hundaleikfang.
Svo fórum við í Bónus og keyptum dálítinn harðfisk. Lucky veit ekkert betra en harðfisk og getur enn unnið á honum, þótt alvöru bein reynist honum erfið viðureignar.
Þegar við komum heim þurftum við að pakka. Fyrst var það púðinn. Systur völdu skærbláan jólapappír með snjókörlum á. Þær skiptust fallega á að skella límbandi á pakkann og af því að það er svo gaman að líma eru örugglega 40 límbandsbútar á þessum eina pakka.
Svo varð að setja borða utan um pakkann, "af því að Lucky finnst skemmtilegast í heimi að opna pakka með böndum," sagði Margrét ákveðin.
Þegar púðapakkinn var orðinn óaðfinnanlegur var röðin komin að harðfisknum. Þær voru alveg með það á hreinu hvernig ætti að ganga frá þeim pakka. Fyrst ætti að klippa aðeins gat á pakkann með harðfisknum, svo lyktin ljúfa næði að laumast út og svo að setja gjafapappírinn yfir.
Þessi pakki varð gylltur og auðvitað annar skrautborði utan um hann.
En þar með var þessu ekki lokið, aldeilis ekki. Systur áttu nokkrar kokkteilpylsur í frysti, náðu í þær, settu í plastpoka og pökkuðu öllu saman inn í gjafapappír. Þessi pakki varð eins og karamella í laginu, en svoleiðis pakkar finnst þeim mjög flottir. "Við fengum einu sinni svona pakka í afmælisgjöf. Karen á leikskólanum gaf okkur hann," sagði Margrét, sem fer létt með að rifja slíka hluti upp, tæpu ári síðar.
Þær voru hæstánægðar með útkomuna. Ég sagði þeim að Lucky yrði áreiðanlega mjög glaður að fá þær í heimsókn, hvað þá með alla þessa pakka. Elísabet sagðist líka verða glöð að hitta Lucky.
Og svo bætti hún við: "Ég vil vera mikið með honum. Það fer kannski að styttast í að hann geispi golunni."
Hún horfði stíft á mig, til að kanna viðbrögðin við þessari flottu setningu.
"Ja, kannski, já, hann er náttúrulega orðinn gamall hann Lucky," stamaði ég, enda allt of undrandi til að geta farið að hlæja.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 14.2.2008 kl. 21:32
Flott hja systrunum
Ásta Björk Solis, 14.2.2008 kl. 21:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.