15.2.2008 | 08:33
Dúett
Systur tóku gítarana sína með í skólann í morgun. Þær ætla að troða upp á sal í hádeginu. Tvö lög á efnisskránni, Krummi svaf í klettagjá og Súrmjólk í hádeginu.
Þær æfðu sig í gær og í fyrradag og tóku svo stutta rispu áður en þær fóru í skólann í morgun. Ég er viss um að þetta gengur vel hjá þeim. Hlakka til að sjá stoltið skína af þeim þegar ég sæki þær í dag.
Kata hingdi í gærkvöldi, áður en systur fóru að sofa, til að heyra í þeim hljóðið og gefa þeim góða nótt knús símleiðis. Hún talaði fyrst við Margréti, sem kreisti símann fast í kveðjuskyni og spurði mömmu sína hvort hún hefði fundið knúsið. Og kyssti svo í símtólið. Mamma hennar fann auðvitað knúsið og fékk kossinn alla leið til Akureyrar. Svona knús og kossar hafa skilað sér til annarra landa, svo Akureyri er ekkert mál.
Þær systur vissu að mamma þeirra var á fundum í allan gærdag, enda fór hún norður í vinnuferð með heilbrigðisráðherra. Þegar kom að kvöldknúsi Elísabetar símleiðis smellti hún kossi á símann og spurði mömmu sína hvort hann hefði skilað sér. Já, Kata hélt það nú. Og kyssti til baka. Eísabet varð þá allt í einu dálítið vandræðaleg og spurði mömmu sína, hvort það væri einhver hjá henni.
Eftir að þær höfðu kvatt spurði ég Elísabetu af hverju hún hefði verið að velta því fyrir sér hvort einhver hefði verið hjá mömmu hennar. Hún viðurkenndi, að hún væri feimin við tilhugsunina um að einhver sæi mömmu hennar kyssa stelpuna sína í símann. "Nema ef það var Gulli ráðherra, af því að hann á sjálfur tvíbura."
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið finnst þetta nú bara fallegt.
Þið eigið flottar stelpur og skemmtilegar og hugmyndaríkar
og eins og öll börn,gefa þau okkur svo mikið gott og jákvætt í lífinu og þsð eru mikil forréttindi að fá að vera hluti af þeirra lífi og samtarfi.kv.lindaþ
ps.vonandi verður helgin ykkar notaleg og góð.
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 15.2.2008 kl. 09:12
Takk og sömuleiðis, Linda
Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.2.2008 kl. 09:43
Þetta er sniðug hugmynd. Má ég nota þetta frá henni Elísabetu? Að kalla ráðherrana og ráðamenn svona sætum gælunöfnum þá er erfiðara að bilast úr pirringi gagnvart þeim. Við erum alltaf að heyra um Þorgerði Katrínu í staðinn fyrir Diddu Kötu, eða Gulli ráðherra er líka sætt. Það verður allt svo mannlegt þannig..
Garún, 15.2.2008 kl. 09:54
Já, Garún, ég get hiklaust mælt með að sem flestir noti gælunöfn stjórnmálamanna, til að draga út pirringi
Æ, það virkar nú samt ekkert vel hjá Villa
Ragnhildur Sverrisdóttir, 15.2.2008 kl. 10:10
Nei Villi er annað mál...það meira að segja hjálpar stundum að kalla hann Vilhjálm. Þá verður hann ekki svo klúðurslegur í huga manns.
Garún, 15.2.2008 kl. 10:31
Gaman að lesa bloggið þitt og um sætu stelpurnar þínar hafið góða helgi
Brynja skordal, 15.2.2008 kl. 14:51
Finnst ykkur glatað ef ég læt skíra son minn Vilhjálm Rey ... Vilhjálmur Reyr í nefnifalli. Þetta yrði bara svona í höfuðið á öllu veseninu í borgarmálum þessar fyrstu vikur lífs hans.
GK (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 15:37
Nei GK mér finnst það vel við hæfi og ég vona að pabbi guttans heiti Borgar, það væri enn betra. Vilhjálmur Reyr Borgarson
Garún, 15.2.2008 kl. 16:24
Það er ekkert vandræðalegt að kyssa mömmu sína í gegnum síma!!!
Ég geri það sjálf!
ps.lol
Elín Sjöfn Stephensen (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 20:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.