17.2.2008 | 20:59
Tekjur
Svakaleg sósíal helgi að baki!
Systur fóru til guðmæðranna á föstudag og voru auðvitað dekraðar fram og til baka, fengu að horfa á E.T. (þá fékk ég nú nostalgíukast við tilhugsunina), gáfu Lucky harðfisk, pylsur og púða, fengu beikon í morgunmat o.fl., o.fl.
Við kellingarnar eyddum hins vegar öllu föstudagssíðdegi í dekur hér heima. Árshátíð stjórnarráðsins var um kvöldið og við fengum Sibbu layout-séni á Mogga og förðunarfræðing til að taka okkur rækilega í gegn. Urður bættist í hópinn, enda orðin virðulegur upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins og þurfti að flikka upp á sig fyrir kvöldið. Við vorum svakalega flottar þegar við loks lögðum af stað á árshátíð, eftir sprunguviðgerðir og margar umferðir af alls konar málningu.
Árshátíðin var hin fjörugasta. Fólk í ráðuneytunum er greinilega afskaplega miklir stuðboltar, alla vega svona á réttu stöðunum. Kannski ekki í vinnunni, en þarna í Gullhömrum var sko tjúttað!
Við Kata vorum brattar á laugardaginn, merkilegt nokk, sóttum systur til guðmæðra og ókum með þær í gítartíma. Svo fórum við í langa heimsókn til Ásthildar systur, systurnar knúsuðu hund og frændsystkin, en við fengum kaffi og brauð, sem kom okkur endanlega til fyrri heilsu. Svo drifum við okkur heim og í gönguferð í rigningunni. Við vorum allar orðnar rækilega gegnsósa, þrátt fyrir stígvél og regnkápur. Við vorum líka afskaplega samtaka í að hoppa í öllum pollum, klifra upp á allar skaflaleifar o.s.frv.
Þegar fór að styttast heim sagði Margrét allt í einu: "Það er eins og ég sé með fiskabúr í stígvélinu mínu." Þá kom í ljós að hægra stígvél var hriplekt. Elísabet var í litlu skárri málum. Við Kata urðum að hunskast í Hagkaup í dag og kaupa ný stígvél.
Stuðið var sko ekki búið á þeim gömlu með einni árshátíð. Onei, alls ekki. Við fórum í matarboð á laugardagskvöldinu, í frábæra japanska veislu hjá Addý og Sjonna. Mér skilst að hann hafi séð um eldamennskuna, en hún var hvatamaður og verkstjóri, þ.e. keypti matreiðslubókina, hvatti hann til að nota hana og peppaði hann upp í eldhúsinu. Góð samvinna þar.
Marta Bryndís frænka sat hjá systrum í gærkvöldi. Þeim leiddist það nú ekkert, blessuðum. Og voru svo sætar að kúra fram eftir morgni í dag, okkur til samlætis. Það var eiginlega ekki fyrr en Marta María nágranni bankaði upp á sem almennileg hreyfing komst á heimilislífið, en þá var ég líka skikkuð til a baka klatta ofan í gengið.
Elísabet, Margrét, Marta María og Tara segjast vera að safna í sameiginlegan sjóð, til að kaupa eitthvert stórfenglegt leikfang sem ein þeirra sá í búð um daginn. Margrét er mjög skipulögð og heldur lista yfir möguleika til að safna peningum. Á listanum stendur:
Floka dósir. Hún er auðvitað búin að átta sig á tekjumöguleikum í endurvinnslu.
Næst er: Búa um rúmið. Svo sannfærði hún mæðurnar um að það væri sanngjarnt að hún fengi tíkall þegar hún gengi fallega frá herberginu á morgnana.
Þriðji möguleikinn: Halda tombólu. Hún hefur að vísu aldrei haldið tombólu og hefur enn ekki sýnt neinn áhuga á að hrinda hugmyndinni í framkvæmd, en það er gott að skrá alla möguleika niður.
Svona var listinn lengi vel, með þessum þremur tekjumöguleikum.
Um síðustu helgi komu mamma og pabbi í heimsókn. Að þessu sinni dró pabbi ekki upp súkkulaðistykki til að gefa þeim, eins og hann annars er vanur. Þess í stað fór hann í vasann, dró upp fjóra glampandi hundraðkrónupeninga og gaf hvorri systur tvo.
Margrét ljómaði öll. Fannst þetta greinilega jafnast á við súkkulaði.
Og daginn eftir var búið að bæta á listann, yfir tekjumöguleika: Biþja afa.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 786278
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 18.2.2008 kl. 10:44
Ha ha
Skemmti mér konunglega yfir lestrinum, ég bara elska börn og þeirra humyndir
Kveðja Sissú (með 4 uppkomin börn)
Sissú Hilmars (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 11:03
Vildi nú barasta þakka fyrir trakteríngarnar og sprunguviðgerðir (takk Ragnhildur), sem voru svo rækilegar að allnokkuð átak þurfti til að hreinsa þær algerlega og endanlega af andlitinu á laugardagsmorgun....
Urður (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 17:11
Samúð mín er nákvæmlega engin, frú Urr. Ég er sú sem var máluð INNI í augunum, til að ná smokey'n'sexy áhrifum (þannig kom það alla vega út hjá mér). Hvernig heldur þú að mér hafi liðið þegar ég jóðlaði hreinsikremi undir augnlokin??
Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.2.2008 kl. 17:24
Jæja, var bara smókí á línuna? Dayum! Hvar eru myndirnar? Ég hef þurft að nota stálulll eftir að ég hef farið í extreme klössun hjá Sibbu til að
ná fyrri aldurs- og veðrunaráferð (i.e. til þess að hundurinn hætti að gelta á mig).
En það er gamanað'essu.
Myndir!
hke (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:18
Og, já. Gott að þú þurftir að "þvo þér ofan í andlitið" Ragnhildur. Mig minnir að það hafi síðast gerst árið tvöþúst. Correct me if I'm wrong.
hke (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 22:21
Myndir? MYNDIR?? ARG?!!
Engar myndir. sorry.
Og rétt hjá þér hke, ég var síðast þvegin svona rækilega í framan af konu í San Francisco í tilefni fertugsafmælisins. Geri þetta ekki aftur fyrr en fimmtug.
Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.2.2008 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.