Ísafjörður

Þótt enn sé febrúar eru þær systur farnar að skipuleggja ferð til Ísafjarðar í sumar. Þær hafa farið þangað á hverju sumri, í fyrsta skipti voru þær aðeins fjögurra mánaða gamlar og við höfðum flutt heim frá Kaliforníu nokkrum dögum fyrr. Mamma varð sjötug það sumar, svo auðvitað fór öll fjölskyldan vestur að halda upp á það með henni.

Við höfum yfirleitt stoppað í viku vestra, alltaf í kringum afmælið hennar mömmu í júlí, en í hugum þeirra systra eyða þær öllum sumrum þar. Þarna eru ævintýrin við hvert fótmál, tröll í fjöllunum, álfar í þúfum, árabáturinn flytur þær í alls konar svaðilfarir, þær ganga á fjöll, leika sér í garðinum hjá Möggu frænku eða skoða gamlar slóðir okkar systkinanna niðri við Grund, sumarbústaðinn sem fjölskyldan hefur átt frá því að mamma mín var lítil stelpa. Sverrir frændi hnýtir kassabílinn sinn aftan í hjólið sitt og dregur þær fram og til baka um fjörðinn, fer með þær í leiðangur að grafa dauða andarunga, kveikir varðelda þar til þau eru öll farin að gráta af súrum reyknum og svona mætti lengi telja. Það er hægt að koma ótrúlega miklu í verk á einni viku.

Í sumar ætlum við auðvitað að fara vestur. Við erum búnar að panta gistingu uppi í risi hjá Möggu og Pétri, eins og venjulega. Við eigum örugglega eftir að ganga eitthvað á fjöll, eins og við höfum gert hingað til, eftir því sem kraftar krílanna hafa leyft. Núna langar okkur að fá far með báti yfir á Jökulfirðina og ganga þar um, erum að plana að ganga frá Hesteyri yfir í Aðalvík og fleiri slíkar ferðir koma til greina.

Þessi mynd var tekin í fyrra, þegar við gengum upp í Naustahvilft. Stelpurnar fóru létt með að príla upp fjallið. Þær voru eins og hvolpar, hlupu á undan, komu til baka, fóru aftur á undan, könnuðu hvort við mamma þeirra og Magga frænka værum ekki að nálgast, fóru aftur upp, svo til baka niður og fylgdu okkur síðasta spölinn upp. Þær fóru í raun fjórum sinnum upp og niður á meðan við röltum þetta. Kata hélt góðum og jöfnum hraða upp, en við systur fórum okkur hægar, undir því yfirskini að við þyrftum alltaf að stoppa til að horfa yfir og rifja upp bernskuminningar. Auðvitað þurftum við ekki að kasta mæðinni, neinei Blush

Myndin er dálítið hrikaleg, það er nánast eins og við stöndum frammi á hengiflugi, en svo slæmt var það nú ekki. Hundurinn hennar Ásthildar systur, hann Tumi kríli, fékk að fylgja með. Við Kata eigum eins mynd, sem var tekin af okkur tveimur á sama stað fyrir 15 árum, ungum og barnlausum. Ég á hana ekki inni í tölvunni, gref hana kannski upp síðar.

Isafjordur_juli_2007

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott mynd með flottan bakgrunn. Kannski maður rekist á ykkur í Vigur í sumar ;)

Dagný Sverris (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 00:07

2 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Við förum sko alveg örugglega út í Vigur í sumar, eins og í fyrra, og árið þar á undan og þar á undan....

Ég mun svipast alveg sérstaklega um eftir þér, meira að segja áður en ég skelli mér í pönnsurnar

Þetta minnir mig á að grafa upp myndirnar úr Vigur, t.d. þær sem voru teknar þegar systur voru bara 4 mánaða strá.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 20.2.2008 kl. 09:26

3 identicon

Já það er vonandi að ég verði þarna á sama tíma :)

Dagný (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 786278

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband