Stígvél sem snarvirka

Þegar ég sótti systur í skólann kom Margrét æðandi á móti mér: "Nýju stígvélin SNARVIRKA! Ég hoppaði ofan í alla polla og þau láku sko ekki neitt. Þau SNAAAAR-VIRKA!"

Í öllu þessu pollahoppi hafði hún að vísu blotnað sjálf og hún missti líka töskuna með leikfimidótinu ofan í poll. En stígvélin snarvirkuðu og það var fyrir öllu.

Tara fékk að koma aðeins heim með systrum og Marta María bættist í hópinn nokkrum mínútum síðar. Logalandsgengið skemmti sér með tilþrifum, en núna eru þær allar farnar í fimleika. Hér er ró og friður. Næsta klukkutímann eða svo.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að heira að lillurnar skemmti sér vel og að stígvélin hennar Margrétar virki!

     kv.

  Elín Sjöfn

ps:lol

Elín Sjöfn Stephensen (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 19:57

2 identicon

hahaha :D þetta blogg þitt SNARVIRKAR!!!!!!!!

Dabbaa (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 20:13

3 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Gaman að sjá þig hér, Elín Sjöfn  Þú veist nú manna best hvað fjörið getur verið mikið hjá systur þinni og vinkonum hennar.

Þetta snarvirkar

Ragnhildur Sverrisdóttir, 18.2.2008 kl. 23:01

4 identicon

Alltaf jafn gaman að lesa um gullmolana okkar. Nú  þarf ég að röfla… Núverandi meirihluta í Reykjavk datt það snjallræði í hug að skella 5 ára börnunum í Grunnskólann.

Virðist nokkuð vanhugsað, sé ekki að þeim hafi gengið svo vel að manna grunnskólana af kennurum eða hvar hafa þeir hugsað sér að setja blessuð börnin, kannski í gáma? Annað sem fer auðvitað ferlega í taugarnar á mér er hvað þeir virðast hafa lítið álit á því starfi sem við erum að vinna með þessum nemendum okkar. Þau ættu kannski að kynna sér starfsemina sem fer fram með þessum börnum. Þessi aldur nýtur sín í leikskólanum með því að fá að þroska félagshæfni sína jafnhliða því að “læra” daginn út og inn.  En auðvitað er þetta eingöngu eigingirni í mér, það hefði verið hræðilegt að missa af öllum þeim skemmtilegu stundum sem ég hef átt með nemendum mínum undanfarin ár. Jæja nú er ég búin að ausa smá og get farið að herja á Leikskólaráð róleg og fín!!  Kossar og knús til ykkar allra ef það skilar sér ekki með sama hætti og í símanum þá tekur þú þetta að þér og ef þú sérð hann Bjarka minn þá sendi ég honum eitt gott knús.

 

Valsarinn

Linda Ósk (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 00:09

5 Smámynd: Ragnhildur Sverrisdóttir

Ekki hefði ég nú viljað að dæturnar misstu af því að eyða 5 ára bekknum á Rauðu deildinni hjá þér og hinum snillingunum, Linda

Ég skilaði knúsinu frá þér til stelpnanna í morgun og bað þær að skila knúsi áfram til Bjarka. Margrét tók að sjálfsögðu mjög vel í það  Bjarki ætlar að heimsækja okkur bráðum, það er orðið langt síðan hann kom heim með þeim eftir skóla.

Ragnhildur Sverrisdóttir, 19.2.2008 kl. 12:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Logalandið

Höfundur

Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ...5558_132_lg
  • M á Sigló
  • E á Sigló
  • sigur á 8 ára afmæli
  • systur í afmælisbrunch

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband