20.2.2008 | 08:53
Hálfsannleikur og lygin öll
Pistill í 24 stundum 19. febrúar.
Veit einhver hvað það þýðir þegar talað er um að trúnaður eigi að ríkja milli fólks? Að ekki sé æskilegt að fabúlera í fjölmiðlum um vangaveltur viðmælanda? Að stundum sé nauðsynlegt að geta sagt hug sinn, án þess að þau ummæli komi með stríðsletri í fyrirsögnum dagblaða?
Opin stjórnsýsla felur það í sér að kjörnir fulltrúar og embættismenn eiga ekki að pukrast með málefni sem koma almenningi við. Hins vegar virðast margir misskilja hugtakið þannig, að aldrei megi ríkja trúnaður milli manna. Það er víst ekkert tiltökumál að senda sms út af lokuðum fundum þingflokka eða öðrum trúnaðarfundum. Hálfkaraðar skýrslur leka út úr borgarstjórn, aðrar úr ráðuneytum. Og af því að þær eru hálfkaraðar nýtast þær vel öllum þeim, sem vilja fá að stjórna umræðunni. Telja menn sig kannski halda trúnað, ef ekki er hægt að rekja lekann til þeirra?
Fjölmiðlar eiga alltaf að spyrja sig hver tilgangurinn sé með leka af þessu tagi og reyna að hindra að þeir séu notaðir í annarlegum tilgangi. Það skiptir engu að vera fyrstur með fréttina, ef fréttin er bull eða í mesta lagi hálfsannleikur. Gömul prinsip, að fara ekki með sögur frá nafnleysingjum, eru löngu rokin út í veður og vind. Nafnbirting gæti komið mönnum illa, segja þeir sem verja slík vinnubrögð, og líta framhjá því að nafnleysið er besta skálkaskjólið sem býðst. Fjölmiðlar eiga ekki að gleypa við slíku.
Um bloggið
Logalandið
Bloggvinir
-
margretsverris
-
begga
-
annapala
-
stebbifr
-
andreaolafs
-
sms
-
seth
-
salvor
-
hrafnaspark
-
svartfugl
-
vitinn
-
ingibjorgelsa
-
konukind
-
eddaagn
-
konur
-
thorbjorghelga
-
elvabjork
-
steinunnolina
-
jullibrjans
-
toshiki
-
adhdblogg
-
malacai
-
arndisthor
-
asarich
-
baldvinjonsson
-
berglindnanna
-
beggita
-
birna-dis
-
birtab
-
bjb
-
blomid
-
dabbaa
-
doggpals
-
madamhex
-
saxi
-
ellasprella
-
garun
-
gislihjalmar
-
neytendatalsmadur
-
gudni-is
-
lucas
-
gylfig
-
iador
-
helgamagg
-
skjolid
-
hildigunnurr
-
hildurhelgas
-
himmalingur
-
hlekkur
-
danjensen
-
innipuki
-
jakobk
-
jenfo
-
joninaros
-
prakkarinn
-
nonniblogg
-
julianamagg
-
kari-hardarson
-
kiddijoi
-
kollak
-
hjolaferd
-
kristinm
-
lenapena
-
liljabolla
-
lillagud
-
lindalinnet
-
101isafjordur
-
mal214
-
mongoqueen
-
olinathorv
-
fjola
-
amman
-
siggiholmar
-
sij
-
sigthora
-
zsapper
-
svala-svala
-
possi
-
saemi7
-
saethorhelgi
-
steinibriem
-
thorasig
-
thorhildurhelga
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.